Lífið

Jennifer Aniston með nýjan kærasta

sev skrifar
Ekkert slor.
Ekkert slor. MYND/Getty
Jennifer Aniston er komin með nýjan mann upp á arminn og hefur því væntanlega eitthvað annað að hugsa um en endalausar fréttir af sínum fyrrverandi og hans núverandi, hinni ægifögru Angelinu Jolie. Raunar afþakkaði Jennifer boð móður Brads Pitts um að verja jólunum með henni, til þess að vera með sínum heittelskaða.

Sá heppni gæti raunar verið litli bróðir Brads, að minnsta kosti eru þeir ekki ósvipaðir. Hann heitir Jason Lewis, og er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem mennskt kynlífsleikfang hinnar vergjörnu Samönthu í Sex and the City.

Parið kynntist fyrst í gegnum Brad, en fóru að áeggjan sameiginlegra vina á stefnumót í nóvember að sögn heimildamanna Star tímaritsins. Þau byrjuðu saman strax eftir fyrsta stefnumót, og búa nú nánast saman.

Að sögn blaðsins eyða þau megninu af tíma sínum í huggulegheitum heima, að borða góðan mat, stunda líkamsrækt og horfa á sjónvarp. Heimildamennirnir segja að Jason sé rólegheitamaður hinn mesti, og sé meinilla við skemmtanalífið í Hollywood. Það hafi raunar verið það sem splundaði sambandi hans við fyrrverandi kærustuna, Rosariu Dawson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.