Lífið

Sextíu milljónir fyrir frásögn af meðgöngunni

Systurnar Britney og Jamie Lynn Spears.
Systurnar Britney og Jamie Lynn Spears.

Tímaritið OK greiddi Jamie Lynn Spears, systur Britney og Lynne móður þeirra eina milljón bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 60 milljónir íslenskra króna, fyrir einkaréttinn á frásögn af þungun Jamie og forkaupsrétt á öðru efni sem tengist þungun hennar, svo sem einkarétt á að birta fyrstu myndir af barninu. Einungis örfáar vikur eru síðan tilkynnt var um að Jamie ætti von á barni en Britney, systur hennar, hefur ekki gengið of vel við uppeldið á börnunum sínum tveimur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.