Lífið

Uri Geller kaupir 360 skeiðar fyrir bílinn sinn

Uri Geller og bíllinn góði.
Uri Geller og bíllinn góði.
Á meðan almúginn stritar sveittur við það að kaupa síðustu jólagjafirnar, hefur Uri Geller öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa. Hann gerðist kaupglaður mjög á uppboði í London í dögunum þar sem hann fjárfesti í 360 skeiðum.

Geller öðlaðist frægð á áttunda áratugnum fyrir ótrúlega hæfileika sína í því að hreyfa hluti úr stað og beygla skeiðar, að því er virðist með hugarorkunni einni saman. Dulrænir hæfileikar hans hafa þó verið dregnir í efa, en myndir hafa náðst af Geller sem sýna að hann beitir í raun handafli til að beygla skeiðarnar.

Talsmaður töframannsins sagði hann ætla að nota skeiðarnar, sem eru úr innbúi Savoy hótelsins fræga, til þess að skreyta bíl sinn. Bíllinn, sem hann kallar ,,The Geller Effect", er sérsmíðaður Cadillac árgerð 1976, sem er skreyttur um fimm þúsund stykkjum af beygluðum hnífapörum sem flest voru eitt sinn í eigu, notuð eða snert af þekktum einstaklingum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.