REI, REI, ekki um jólin 18. desember 2007 09:37 Úr jólamyndbandi Orkuveitunnar.
Starfsfólk nokkurra deilda Orkuveitunnar gerði sér glaðan dag á Jólahlaðborði á föstudaginn var. Hefð hefur myndast fyrir keppni um besta skemmtiatriðið á hlaðborðinu og í ár var það sölu- og markaðsdeildin sem sló allt út. Þeir hafa útbúið myndband þar sem sungið er jólalagið "Nei, nei, ekki um jólin" með nýjum texta sem nú útleggst, "REI, REI, ekki um jólin". Textinn fjallar um starfsmann Orkuveitunnar sem hefur fengið nóg af umræðunni um málefni Orkuveitunnar og REI og biður sér vægðar yfir hátíðarnar. Í myndbandinu koma allir helstu forkólfar Orkuveitunnar fram auk þeirra stjórnmálamanna sem hafa mest látið til sín taka í rifrildinu um fyrirtækið. Þannig má sjá Guðmund Þóroddsson, forstjóra REI, Bjarna Ármannsson, stjórnarformann REI, Svanhildi Svavarsdóttur, Kjartan Magnússon og Björn Inga Hrafnsson taka undir í laginu þar sem þau öll óska sér það heitast að menn hvíli sig á REI-málinu fram í janúar. Þó vantar nokkra aðalleikendur úr REI-málinu í myndbandið, kannski helst þá félaga Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóra og Hauk Leósson, fyrrverandi stjórnarformann OR. Í aðalhlutverki er hins vegar Loftur Már Sigurðsson, viðskiptastjóri í söludeild OR sem fer með aðalhlutverkið í þessu bráðskemmtilega myndbandi.Hér er slóð á myndbandið góða.
Mest lesið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Fleiri fréttir Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein