Óhöppum fjölgar í Þjóðleikhúsinu 17. desember 2007 16:04
Vegna fjölda áskorana verður efnt til aukasýninga milli jóla og nýárs á leikritinu Óhapp! eftir Bjarna Jónsson. Leikritið var fyrsta verkefni leikárs Þjóðleikhússins í haust og fékk afbragðs góða dóma og góðar viðtökur hjá áhorfendum. Verkið tekur á íslenskum veruleika með nýstárlegum hætti en viðfangsefni þess er sjónvarps- og fjölskylduumhverfi nútíma Íslendinga. Margir hafa líkt verkinu við Stundarfrið, leikrit Guðmundar Steinssonar sem þótti á sínum tíma ná á einstaklega glöggan og frumlegan hátt að tjá ástand íslensku þjóðarinnar. Í verkinu er litið inn til ungra hjóna sem eru að gera upp glæsilega íbúð, en samtímis að takast á við erfiða reynslu úr fortíðinni. Fjölmiðlafólkið sýnir einnig á sér nýja og óvænta hlið þar sem meistarakokkur töfrar fram gómsætan rétt úr kunnuglegu hráefni og sálfræðingur lætur ljós sitt skína. Þetta hljómar jú eins og prýðilegt efni í gott sjónvarp. Eða er þetta leikhús? Hver ber ábyrgðina í þessu máli? Leikstjóri sýningarinnar er Stefán Jónsson, höfundur leikmyndar er Börkur Jónsson en hljóðmynd gerir Frank Hall. Meðal leikara í sýningunni eru Atli Rafn Sigurðarsson, Dóra Jóhannsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson. Leikhúsunnendur geta gengið að fjölbreyttum úrvalssýningum yfir hátíðarnar í Þjóðleikhúsinu því auk Óhapps! verða einnig sýningar á íslensku barnaleikriti, Góðu kvöldi eftir Áslaugu Jónsdóttur og ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson. Unnendur erlendrar samtímaleikritunar geta einnig séð verk þýska leikskáldsins Rolands Schimmelpfennigs, Konan áður, á Smíðaverkstæðinu. Sem fyrr verður jólasýning leikársins frumsýnd á Stóra sviðinu á annan í jólum en að þessu sinni verður jólafrumsýningin aðlögun leikstjórans Baltasars Kormáks á æskuverki Antons Tsjekhovs, Ívanov.
Mest lesið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira