Giftu sig á rómantískri strönd í Ástralíu SEV skrifar 14. desember 2007 14:59
Hjónin Magnús Rúnar Magnússon og Elsa Karen Jónasdóttir voru búin að velta ýmsum staðsetningum fyrir sér þegar þegar þau ákváðu að gifta sig á ástralskri strönd. ,,Upphaflega ákváðum við að gifta okkur á Havaí, en það var illa tekið í það af fjölskyldu, sem vildi vera viðstödd." segir Magnús. Parið ákvað því að gifta sig næsta vor á Siglufirði, þaðan sem fjölskylda Elsu er. Undirbúningurinn þótti þeim þó ekkert skemmtilegur. Þegar Elsa vann BMW golfmót, og þar með ferð BMW international mót í Sidney, ákváðu þau að kanna hvort ekki væri hægt að láta pússa sig saman þar, tveimur vikum fyrir brottför. Parið hafði samband við fyrirtæki sem skipulegur brúðarveislur, sem neitaði í fyrstu að taka að sér verkefnið, enda þótti fyrirvarinn heldur skammur. Þeir gáfu sig þó á endanum. Fyrirtækið sá um allt frá pappírsvinnu yfir í að útvega prest, ljósmyndara og limósínu og parið þurfti því ekkert að gera annað en að velja stað og stund og borga uppsett verð, sem var um 160 þúsund krónur.Athöfnin fór fram 3. desember síðastliðinn á lítilli strönd í nágrenni Sidney sem heitir Milk Beach. ,,Við vorum bara tvö, með prest og ljósmyndara. Þetta var eins rómantískt og það verður." segir Magnús.Parið sagði fáum hvað til stæði þegar þau fóru út. Að athöfninni lokinni biðu þau í tvo daga eftir myndunum, sem þau sendu svo til vina og ættingja heima, sem hafa líklega margir hverjir orðið hissa. Sagan kvisaðist svo út og barst til eyrna B&L, sem borgaði ferðina út til Ástralíu. Markaðsstjóri fyrirtækisins hafði þá samband við hótelið sem parið dvaldi á í Sidney, og lét uppfæra þau í 200 fermetra forsetasvítu, þar sem þau dvöldu í átta daga. Svítan var stórglæsileg, og svo stór að ekki heyrðist milli enda. Aðspurður sagði Magnús að ættingjar parsins á Íslandi hefðu ekkert verið of súrir yfir því að missa af athöfninni. Brúðkaupsveisla yrði haldin á Íslandi innan skamms. ,,Einhverjir voru líklega að búast við þessu" segir Magnús, en parið trúlofaði sig á sínum tíma undir Eiffel-turninum í París ,,Það þurfti að reyna að toppa það." bætti hann við.
Mest lesið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Sjá meira