Lífið

Flugfreyjur Ryanair afklæðast fyrir gott málefni

Ungfrú apríl.
Ungfrú apríl.
Þá sem dreymir að vita hvað leynist undir siðsömum drögtum flugfreyja sem sýna farþegum hvernig þeir skuli bera sig að hrapi flugvélin í hafið geta nú fengið forvitni sinni svalað. Í nýju dagatali frá írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair, skreyta hvern mánuð fáklæddar freyjur í hinum ýmsu stellingum í og við flugvélar. Fjöldi karlflugþjóna vinnur hjá félaginu en ekkert karlkyns rataði þó í dagatalið.

Kvenréttindasinnum er ekki skemmt. Stofnun innan spænska félags- og vinnumálaráðuneytisins, segir dagatalið sýna kvenfyrirlitningu og ætlar að senda formleg kvörtunarbréf til írskra stjórnvalda og Evrópusambandsins. Stofnunin segir að myndirnar ýti undir niðrandi stalaðímyndir og sýni flugfreyjurnar sem einungis sem kynverur. ,,Við erum ekkert að tala um siðsemi eða nekt hérna, einfaldlega í hvaða ljósi þessar konur eru sýndar." sagði Maria Jesus Ortiz, talsmaður stofnunarinnar. ,,Hefðu verið karlmenn í dagatalinu líka hefði enginn kippt sér upp við það"

Ryanair ver gjörðir sínar og segir að flugfreyjurnar hafi allar boðist til að taka þátt, og ágóðinn renni til góðra málefna. Dagatalið verður selt í öllum vélum Ryanair og rennur allur ágóði til Angel Quest, samtaka sem hjálpa fátækum börnum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.