Erlendur stefnir á Íslandsmet 12. desember 2007 16:20 Ingvar Sigurðsson í hlutverki Erlends í Mýrinni.
Allt stefnir í Íslandsmet í sölu á nýrri bók Arnaldar Indriðasonar um rannsóknarlögreglumanninn Erlend Sveinsson í ár. Harðskafi, sem er áttunda sagan um Erlend, var prentuð í stærsta upplagi frá upphafi og hefur þegar verið endurprentuð, en þriðja prentunin verður svo sett í gang á næstu dögum. Með henni fer upplagið hátt í 30 þúsund eintök. Þetta er algjört einsdæmi í íslenskri bókaútgáfu, engin íslensk skáldsaga hefur náð þessum árangri fyrr. Viðurkenningunum rignir reyndar yfir Arnald þessa dagana, sem fékk nýlega tilnefningu til Martin Beck verðlaunanna í Svíþjóð. Nú hefur Röddin, sem kom út í ársbyrjun í Frakklandi hjá forlaginu Métalié, hlotið hin virtu verðlaun ,,Grand Prix de Littérature Policière" sem besta erlenda glæpasagan sem kom út í Frakklandi á árinu. Þar skipar Arnaldur sér í hóp heimsþekktra höfunda, eins og Ian Rankin, Michael Connelly, Peter Robinson, Caleb Carr, Elizabeth George, Michael Dibdin og James Patterson North og fleiri. Ljóst er að bækur Arnaldar njóta mikilla vinsælda í Frakklandi, því þetta eru fimmtu verðlaunin sem honum hefur hlotnast þar frá því að Mýrin var gefin út 2005. Grand Prix de Littérature Policière verðlaunin voru stofnuð í Frakklandi 1948 og eru virtustu verðlaun í Frakklandi fyrir glæpasögur. Tvenn verðlaun eru veitt árlega, annars vegar fyrir frumsamdan krimma á frönsku og hins vegar fyrir þýðingu á erlendum reyfara. Röddin hlaut strax lofsamlega dóma í frönskum dagblöðum, m.a. gaf Mikaël Demets hjá tímaritinu Evene bókinni fimm stjörnur og segir hana búna miklu innsæi og eiginleikum sem snerta lesandann djúpt, en slíkt sé fágætt í glæpasögum.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira