Lífið

Amy var bara nývöknuð í brjósthaldararölti

Getur komið fyrir hvern sem er.
Getur komið fyrir hvern sem er.
Miðnæturrölt Amy Winehouse á brjósthaldara og gallabuxum einum fata í London um helgina tengdist sukki og partýstandi ekki á nokkurn hátt. Þetta vill talsmaður söngkonunnar meina.

Fjöldi mynda náðist af Winehouse rétt fyrir sex á sunnudagsmorgun, þar sem hún vafraði hálfber um götur nálægt heimili sínu. Að sögn ljósmyndaranna var stjarnan, sem var aldrei þessu vant ómáluð og án greiðslunnar sinnar ofvöxnu, svo rugluð að engin leið var að skilja hvað hún sagði.

People tímaritið hefur það eftir talsmanni stjörnunnar að þetta eigi sér allt eðlilegar skýringar. Winehouse hafi verið steinsofandi þegar hún vaknaði við hávaða fyrir utan húsið sitt. Hún hafði verið með vini í heimsókn fyrr um kvöldið og ákvað því að tékka á því hvort einn þeirra hefði kannski komið aftur. ,,Hún heyrði allan þennan hávaða og fór út til að gá, og þar voru allir þessir ljósmyndarar." sagði talsmaðurinn.

Talsmaðurinn sagði að í ljósi atburða liðinna vikna væri auðvelt að draga rangar ályktanir af atvikinu. ,,Henni er að batna, og hún þarf frið til að gera það." sagði talsmaðurinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.