Lífið

Opnar áheyrnarprufur fyrir nýjan söngleik eftir Hallgrím Helga

Áheyrnarprufur fyrir nýjan söngleik eftir Hallgrím Helgason, Ástin er diskó, lífið er pönk, fer fram í húsakynnum Reykjavík Studios á fimmtudaginn. Leitað er að ungum karlmönnum á aldrinum 18 til 30 ára sem geta leikið og sungið.

Gunnar Helgason leikstýrir söngleiknum, sem verður sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins næstkomandi vor. Tónlistarstjóri sýningarinnar er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.

Lögin sem flytja á í prufunni eru Hiroshima eftir Bubba og Utangarðsmenn, Vetrarsól með Bó Hall og Diskó Friskó eftir St. S. Stefánsson. Ekki er verra ef viðkomandi geta leikið á hljóðfæri en það er ekki skilyrði. Hljóðfæri verða á staðnum ef menn vilja leika undir eigin söng. Sviðsreynsla er æskileg en alls ekki skilyrði. Áhugasamir skrái sig hjá Dóru Hafsteinsdóttur, kynningarfulltrúa Þjóðleikhússins á netfangið dora@leikhusid.is í síðasta lagi 5. desember.

Áheyrnarprufan verður sem fyrr sagði haldin í húsakynnum Reykjavík Studios að Nýbýlavegi 8, Dalbrekku megin, fimmtudaginn 6. desember klukkan 19.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.