Nei úps, er þetta Range-inn þinn Steini? SEV skrifar 3. desember 2007 16:00 MYND/B&L
Blaðamaður Vísis varð vitni að neyðarlegu atviki um daginn að loknum stjórnarfundi hjá 365. Þegar stjórnarmenn stigu út af fundi og ætluðu að keyra á brott, vildi ekki betur til en svo að Magnús Ármann, einn stjórnarmanna, fór bílavillt og reyndi að opna bíl Þorsteins M. Jónssonar. Það þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart, enda voru þeir allir á eins svörtum Range Rover Vogue Supercharger. Frá árinu 2003 hafa 600 Range Rover bílar selst hér á landi. Þeim fjölgar ört, en það sem af er þessu ári hafa á bilinu 70-80 eintök selst, og er það umtalsverð aukning frá fyrra ári. Af þeim bílum sem eru í umferð, eru um 70% svartir eða silfurlitir. Andrés Jónsson, kynningarstjóri hjá B&L, segir að menn geti ýmislegt gert til að skera sig úr hópnum, til dæmis að fá sér hvítan Range Rover. Bæði sé maður með því öðruvísi en fjöldinn, og svo segi liturinn líka ýmislegt um fjárráðin. Erfitt sé að halda hvítum bíl almennilega hreinum, og því þurfi maður að hafa efni á því að láta þrífa hann. Andrés segir líka að óvenjulegir litir séu erfiðari í endursölu. Má því ætla að afföllin séu meiri af þeim bílum. Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður 365, fylgist greinilega vel með, en hann hefur um nokkurt skeið átt hvítan Range Rover. Vilji vel stæðir betri borgarar hinsvegar skipta um tegund til að skera sig úr fjöldanum vandast málin. ,,Við erum reyndar með umboð fyrir Rolls Royce. Svona bílar bera þó mikið vörugjald, og innfluttur gæti svona bíll kostað á bilinu 60-70 milljónir króna." segir Andrés og bætir við að menn virðist feimnir við að vera fyrstir að fá sér slíkan bíl. Hann sér annan bíl fyrir sér sem líklegan arftaka. B&L hefur á næsta ári sölu á BMW X6, lúxus sportjeppa sem Andrés spáir vinsældum í þessum kaupendahópi.
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira