Lífið

Berstrípaður í þriggja vikna einangrunarvist

Breki Logason skrifar
Aron Pálmi var í þriggja vikna einangrun árið 2003.
Aron Pálmi var í þriggja vikna einangrun árið 2003.

Aron Pálmi Ágústsson var settur í einangrunarklefa árið 2003. Þá um tvítugt. Hann var sakaður um að hafa ráðist á samfanga, eða samnemanda eins og þeir voru kallaðir, en ekkert var sannað og hann neitar því sjálfur.

Aron sat í einangrun í 21 dag og eftir það hefur hann verið hræddur við myrkrið, ekki getað sofið með ljósið slökkt eða þögn. Hann sefur því yfirleitt með kveikt á sjónvarpinu. Þetta kemur fram í bók Arons Pálma, Enginn má sjá mig gráta, sem kemur út nú fyrir jólin. Bókin er ein sú umtalaðasta í jólabókaflóðinu en frásögn Arons er bæði hreinskilin og oft á tíðum átakanleg. Hér að neðan má sjá frásögn Arons Pálma á þessari skelfilegu einangrunarvist.



Það virðist ekki skipta máli hversu sterka stöðu maður hefur

hérna inni. Maður er aldrei öruggur.

Ég vakna í rúminu mínu um miðja nótt þegar þrír öryggisverðir

rífa í mig. Þeir draga mig út af einkasvæðinu mínu

á nærfötunum og henda mér upp að veggnum. Strákarnir í

kring vakna og einhver kallar upp yfir sig:

201

- Hvers vegna í fjáranum er öryggisgæslan hérna?

Svipurinn á Aaron Johnson gefur til kynna að hann viti

jafnlítið og ég um það sem er að gerast.

Öryggisverðirnir draga mig út úr byggingunni og inn í

sendiferðabíl. Þeir keyra með mig að öryggisbyggingunni

og ýta mér niður í stól. Ég spyr þá hvað sé á seyði og þeir

segja að ég hafi verið sakaður um að ráðast á nemanda.

Þeir segja að mér verði ekki sleppt fyrr en þeir hafi annaðhvort

sannað sekt mína eða sakleysi. Síðan rífa þeir mig úr

öllum fötunum og henda mér inn í einangrunarklefa. Áður

en þeir loka bið ég um að fá að tala við ungfrú Anderson en

þeir segja að hún sé í fríi. Þeir dæla piparúða inn í klefann

að skilnaði. Blindaður heyri ég hurðarskellinn og ískrið í

læsingunni.

Fyrsti dagurinn reynist þolanlegur eftir að ég venst

myrkrinu. Það er ekki ljósskíma hérna inni. Ég er klæðlaus

og það er kalt. Piparúðinn brennir húðina meðan ég ligg á

dýnunni. Lyktin af honum blandast við hland- og skítalykt.

Ég hnipra mig saman úti í horni og sofna.

Verðirnir trufla mig skipulega. Stundum rjúfa þeir

þögnina með skyndilegum öskrum inn um lúguna og

stundum opna þeir lúguna þannig að birtan blindar mig og

sprauta piparúða inn.

Eftir annan daginn verður allt erfiðara. Ég hef misst allt

tímaskyn og veit ekki hvort það er dagur eða nótt. Ég get

ekki sofið og hugur minn er tómur. Það eina sem ég hugsa

um er að losna út úr klefanum.

Þriðji dagurinn, að ég held, er móðukenndur. Það eina

sem brýtur upp þögnina og myrkrið er að verðirnir opna

lúguna og dæla inn piparúða. Þegar ég hætti ekki að öskra

koma þeir inn í klefann með kylfur og skildi og láta höggin

dynja á mér. Á einhvern sjúklegan hátt fer ég nánast að

hlakka til barsmíðanna því ég vil heyra einhvern tala. Allt

er betra en tómið.

Þeir hleypa mér út samtals þrisvar og ýta mér inn í sturtu.

Ég píri augun og er boginn í baki því ég get ekki rétt úr

mér. Ég er máttvana og næ rétt svo að venjast ljósinu áður

en þeir ýta mér aftur inn.

Ég heyri endalaus öskur. Síðan átta ég mig á því að ég hef

misst röddina. Öskrin eru ekki raunveruleg, þau eru í huga

mínum. Aftur og aftur finnst mér ég sjá djöfla og kóngulær

skríða á nöktum líkama mínum.

Tíminn líður án þess að ég viti mun á degi eða nóttu. Ég

veit ekki hvað ég hef verið hérna lengi. Af hverju vilja djöflarnir

og kóngulærnar ekki láta mig í friði?

Dyrnar opnast skyndilega og ég sé móta fyrir kunnuglegu

andliti í gegnum skerandi birtuna. Þetta er ungfrú

Anderson. Ég píri augun og reyni að kreista fram bros.

- Komdu með mér, segir hún.

Ég klæði mig og hún fer með mig að hitta herra Kirio,

yfirmann deildar 8, og herra Robinson, aðstoðarskólameistara.

Hún er bálreið út í þá og krefst þess að þeir biðjist

afsökunar. Þeir segjast hafa gleymt mér. Ekkert kom út úr

rannsókninni og ég veit ekki hvað ég á að hafa gert.

Ungfrú Anderson segir að ég hafi verið 21 dag í einangrun.

Ég segi ekkert. Ég veit bara að ég verð aldrei samur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.