Innlent

Vél sem lenti á Reykjavíkurflugvelli ekki í fangaflutningum

Úr myndasafni
Úr myndasafni MYND/Stöð 2

Ekkert athugavert kom í ljós við leit lögreglu og tollayfirvalda í flugvél sem tengd hefur verið fangaflugi og hafði viðkomu á Reykjavíkurflugvelli í fyrrinótt. Ríkissjónvarpið greindi frá viðkomu vélarinnar í fréttum sínum í gær en hún var á leið frá Liverpool til Grænlands.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að staðfest sé af hálfu tollayfirvalda og lögreglu að ekkert athugavert hafi komið fram í vélinni og voru allir farþegar í vélinni bandarískir ríkisborgarar og voru vegabréf þeirra skoðuð. Segir utanríkisráðuneytið því að hér hafi ekki verið um fangaflug að ræða.

Þá segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að utanríkisráðherra hafi ákveðið í sumar að láta sérstakan starfshóp í ráðuneytinu skoða flug meintra fangaflugvéla um íslenskt svæði í kjölfar skýrslu þingmanns á þingi Evrópuráðsins. Í þeirri skýrslu er sérstökum tilmælum beint til nokkurra ríkja en Ísland er ekki í þeirra hópi.

„Fram er komið og staðfestist í tilviki vélarinnar N5025, að íslensk stjórnvöld sýna sérstaka árvekni við leit í flugvélum sem bera tiltekin þekkt flugnúmer eða eru á annan hátt sambærilegar þeim vélum sem meint er að hafi verið notaðar til að flytja fanga með hætti sem stríðir gegn alþjóðlegum mannréttindalögum.

 

Utanríkisráðuneytið mun áfram fylgjast með starfi alþjóðastofnana eða einstakra ríkja til að upplýsa meint ólögmætt fangaflug. Samráði sem þegar er hafið við dómsmálaráðuneyti og samgönguráðuneyti verður haldið áfram eftir því sem efni reynast til,„ segir að lokum í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×