Hljómsveitin Hraun í undanúrslit í tónlistakeppni BBC 27. nóvember 2007 14:13
Hljómsveitin Hraun er komin í 20 hljómsveita úrslit í tónlistarkeppni BBC world service sem nefnist The Next Big Thing. Þegar Vísir náði í Svavar Knút Kristinsson, söngvara sveitarinnar, vildi hann ekki gera mikið úr árangrinum. ,,Ég mundi ekki segja að þetta væri neinn árangur ennþá, það er ekki fyrr en maður er kominn út að spila." Svavar sagði sveitarmeðlimi þó að vonum ánægða. ,,Við vonum bara að þetta verði til að vekja athygli á því sem við erum að gera. Ljóst er þó að margir vildu vera í sporum Hrauns, því einhverjar þúsundir sveita sendu inn lög í keppnina. Í henni er leitað að björtustu vonum í röðum heimstónlistarmanna og tónlistar sem liggur utan garðs vinsældatónlistar. Nokkur þúsund listamenn frá 88 löndum kepptu í keppninni og koma þeir sem lentu í undanúrslitum m.a. frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Tansaníu, Jamaica, Frakklandi, Singapore og Rússlandi. Lag Hrauns, Ástarsaga úr Fjöllunum, er nú til spilunar á heimasíðu keppninnar. Það er að finna á plötu Hrauns frá því í vor, I can't believe it's not happiness. Svavar segir að lagið hafi verið tekið upp síldartanki í gömlu síldarvinnslunni í Djúpuvík á Ströndum eitt rauðvínslegið júníkvöld. Staðsetningin og stemningin sem regnið sem féll á tankinn myndaði hafi skilað sér í lagið, og líklega átt sinn þátt í að heilla dómnefndina, sem samanstendur meðal annarra af ekki ómerkara fólki en Tori Amos og Nitin Sawhney. Eftir viku verður tilkynnt um hvaða fimm sveitir keppa til úrslita í keppninni, en þær sveitir munu leika fyrir dómnefndina í London snemma í desember. ,,Við krossleggjum bara fingur og vonum að þau fíli okkur og biðji okkur að koma og spila í úrslitunum. Það verður bara að ráðast" segir Svavar að lokum. Hraun munu annað kvöld, miðvikudaginn 28. nóvember, halda tónleika á Næsta bar, þar sem m.a. verður kynnt efni af næstu plötu hljómsveitarinnar, sem áætlað er að komi út næsta vor. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og mun Eyvindur Karlsson rithöfundur lesa upp úr bók sinni Ósagt.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Sjá meira