Dagbjört í Frostfiski búin að fá afreikningana Breki Logason skrifar 23. nóvember 2007 14:10 Dagbjört Hannesdóttir hjá Frostfiski lenti í Capone bræðrum og Gillzenegger. „
Þeir komu í pósti í gær," segir Dagbjört Hannesdóttir hjá Frostfiski í Þorlákshöfn um afreikningana sem hún var að bíða eftir frá fyrirtækinu Nastar. Netverjar hafa legið í hláturskasti yfir símahrekk sem Capone bræður í samvinnu við Gillzenegger gerðu á útvarpsstöðinni Reykjavík FM í síðustu viku. Strákarnir voru með opinn símatíma þegar Dagbjört hringdi inn og hélt hún hefði náð sambandi við fyrirtækið Nastar. Strákarnir voru fljótir að grípa það á lofti og sendu hana síðan á milli sín í rúmar fimm mínútur. Hún var að reyna að fá afreikninga senda frá fyrirtækinu en endaði með því að skella á eftir að engin niðurstaða hafði fengist í málið. „Auðvitað finnst mér þetta mjög fyndið en það er aldrei gaman að láta gera grín í sér. Sérstaklega ekki þegar þetta vindur svona upp á sig. Ég þori varla að hringja lengur úr vinnunni og kynna mig," segir Dagbjört mjög hress á því. Hún segist ekki einu sinni hafa vitað að þessi útvarpsstöð væri til en veit þó hver Gillzenegger er. „Ég veit hver hann er en hef nú ekkert verið að stúdera hann." Dagbjört segist aldrei áður hafa hringt í Nastar og það var því ekki nema von að hún þekkti ekki raddirnar. „Ég gat ekkert verið að æsa mig enda aldrei átt samskipti við þetta fyrirtæki áður. Ég hef reyndar talað við hana Unni einu sinni í síma en ég gat ekki farið að efast um að þetta væri hún," segir Dagbjört sem getur ekki annað en hlegið af þessari uppákomu. Dagbjörtu finnst þó púkalegt að strákarnir hafi ekki hringt og tilkynnt henni að um símahrekk hefði verið að ræða. „Ég fór til yfirmannsins og sagði þetta Nastar fyrirtæki vera stórfurðulegt. Hann náttúrulegaskyldi ekki neitt í neinu. Síðan sendi ég Unni póst og hún gat ekki svarað mér, þannig að þetta gat alveg passað allt saman." Símahrekk Capone og Gillzenegger má hlusta á hér að neðan.
Mest lesið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Lífið Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Lífið Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lífið Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Fleiri fréttir Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Ómótstæðileg ítölsk steikarloka úr smiðju Hildar Rutar Opnar sig um sviplegt fráfall eiginmannsins „Lítið ömmugull á leiðinni“ hjá Siggu Lund Ríkulegt einbýlishús knattspyrnukappa falt fyrir 315 milljónir Sjá meira