Lífið

Barði og Eberg semja tónlist fyrir jólahrollvekju

Barði Jóhannsson
Barði Jóhannsson MYND/Fréttablaðið
Barði Jóhannson er fjölhæfur maður. Það hefur tæpast farið framhjá neinum þegar hann rúllaði upp samkeppninni í Laugardagslögunum með slagaranum Ho ho ho we say hey hey hey, sem gæti mögulega orðið eina sigurstranglega lagið sem Íslendingar hafa nokkru sinni sent í Eurovision.

Núna greinir framleiðslufyrirtækið Zik Zak frá því á heimasíðu sinni að Barði, oftast kenndur við Bang Gang, sé í félagi við tónlistarmannin Eberg nú að semja lokalag jólahrollvekjunnar ,,Örstutt jól" í leikstjórn Árna Þórs Jónssonar.

Zik Zak liðar lofa rauðum jólum, en stuttmyndin verður blóðug í meira lagi fyrir jólamynd. Íslenskir jólasveinar leika þar hlutverk og eiga lítið sameiginlegt með feita kallinum með skeggið í Smáralind. ,,Þetta er svo sem enginn tilbúningur, þetta er dagsatt, svona eins og jólasveinarnir voru í gamla daga þegar grýla borðaði vonda krakka" segir Grímar Jónsson, meðframleiðandi hjá Zik Zak.

Myndin fjallar um lítinn hóp krakka sem hafa farið út af sporinu og lent í vandræðum með eiturlyf. Þau fara með meðferðarfulltrúanum sínum út á land til að sleppa við ys og þys jólanna. Jólin verða þó ekki friðsæl hjá hópnum, því stuttu eftir komuna byrja óvæntir atburðir að gerast.

Ekki er búið að ákveða hvar myndin verður sýnd. ,,Við stefnum að því að gera hana að jólagjöf til allra landsmanna, hvort sem henni verður dreift í kvikmyndahús, sjónvarp eða á netinu. Það eru margir vegir færir" segir Grímar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.