Lífið

Þríþrautarleikar skáta í Elliðaárdal

Hjálparsveit skáta í Reykjavík efnir til þríþrautarleika í Elliðaárdal í dag og hefst hún klukkan eitt. Miðstöð keppninnar verður við Árbæjarstíflu Árbæjarmegin en hún fer fram bæði ofan og neðan stíflu.

Keppendur hlaupa fjóra kílómetra, hjóla síðan sex kílómetra og róa loks 300 metra. Tilefni leikanna er 75 ára afmæli Hjálparsveitarinna en auk þess fagnar skátahreyfingin því um þessar mundir að eitthundrað ár eru frá upphafi skátastarfs í heiminum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.