Innlent

Miðlægt umferðarljósastýrikerfi tekið í notkun

MYND/Pjetur

Reykjavíkurborg hefur tekið í notkun miðlægt stýrikerfi fyrir fjölförnustu gatnamótin í borginni. Nýja kerfið aðlagar umferðarljósin að umferðinni á hverjum tíma, lengir tíma ljósa þegar álagið er mest og lágmarkar biðtíma vegfarenda í gatnaerfinu.

36 gatnamót af þeim 116 gatnamótum sem stýrt er með umferðarljósum í Reykjavík eru hluti nýja kerfisins í þessum fyrsta áfanga, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Miðlæg stýring umferðarljósa byggir á samskiptaneti milli stjórnkassa og stjórntölvu og umfangsmikilli söfnun umferðarupplýsinga. Út frá þessum upplýsingum reiknar stjórntölvan út flæði umferðarinnar á öllu svæðinu hverju sinni, ákvarðar hvaða stýring er við hæfi og sendir boð í stjórnkassana í gegnum samskiptanetið," segir í tilkynningunni. „Miðlæg stýring umferðarljósa er sameiginlegt verkefni Framkvæmdasviðs Reykjavíkur og Vegagerðarinnar, en í ársbyrjun 2006 var samið við þýska fyrirtækið Siemens AG um þennan fyrsta áfanga verkefnisins. Honum lýkur nú á haustdögum með formlegri afhendingu kerfisins."

Umferðarljósin eru samtengd með ljósleiðarakerfi og mun það vera í fyrsta skipti sem þessi háttur er hafður á í heiminum. Aðferðin sameinar kosti öryggis og mikillar flutningsgetu og segir í tilkynningunni frá borginni að líklegt megi telja að tæknin verði notuð í fleiri borgum í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×