Innlent

Lögreglumenn í djúpum skít

Aðkoman var skelfileg þegar lögreglumennirnir mættu á svæðið.
Aðkoman var skelfileg þegar lögreglumennirnir mættu á svæðið. MYND/Róbert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði í dag húsleit á heimili annars mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa smyglað inn 1800 millilítrum af fljótandi kókaínni. Að sögn sjónarvotta var aðkoman á heimili mannsins skelfileg, límt var fyrir alla glugga og matarleifar og kattarúrgangur um öll gólf. Óþefurinn inni í íbúðinni mun hafa verið slíkur að lögreglumenn þurftu að hafa sig alla við á meðan á leitinni stóð.

Ekki fundust fíkniefni á heimili mannsins en hann ásamt öðrum manni situr í gæsluvarðhaldi fram á miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×