Innlent

Sonur minn var meira en bara fangi

Andri Ólafsson skrifar

"Þetta hefur veitt mér mikinn styrk," segir Ragnheiður Hilmarsdóttir sem undanfarnar vikur hefur vakið athygli fyrir einlæg og opinská skrif á heimasíðu sinni. Sonur Ragnheiðar, Hilmar Már féll fyrir eiginn hendi á Litla-Hrauni, fyrir skömmu og hefur Ragnheiður notað skrifin til að halda minningu hans á lofti.

"Þegar sonur minn dó var fjallað um það í öllum fjölmiðlum. Það var alltaf skrifað það sama: Fangi á Litla-Hrauni framdi sjálfsmorð. Ég vildi sýna að sonur minn var meira en bara fangi. Ég vildi sýna hvað var á bakvið fyrirsagninar."

Ragnheiður segist hafa fengið mikil viðbrögð við skrifum sínum. "Það hafa margir skrifað mér. Bæði aðstandendur fanga og þeirra sem hafa framið sjálfsmorð. En það er líka fólk úti í bæ sem hefur fengið nýja sýn á þessi mál. Fólk sem aldrei hefur hugleitt þennan heim."

Þótt Ragnheiður viðurkenni að henni þyki vænt um viðbrögðin við skrifum sínum segir hún einnig að þau hafa gefið henni mikið. "Það má eiginlega segja að þetta sé ákveðin leið til að takast á við sorgina. Hálfgerð sjálfsmeðferð. Og það sakar ekki ef hún gagnast öðrum í leiðinni."

Skrif Ragnheiðar má lesa á síðunni hross.blog.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×