Innlent

Breskum réttardómstjóra falið að rannsaka banaslys í Hallormsstaðarskógi

Lögreglan á Egilsstöðum fór með rannsókn málsins á sínum tíma.
Lögreglan á Egilsstöðum fór með rannsókn málsins á sínum tíma. MYND/GVA

Réttarrannsókn á Englandi sem staðið hefur yfir vegna banaslyss í Hallormsstaðarskógi í ágúst 2005 hefur verið frestað. Beðið er eftir frekari upplýsingum frá íslenskum yfirvöldum vegna málsins. Fjölskylda enskra hjóna frá Glastonbury, sem létust þegar bíll þeirra lenti í árekstri við flutningabíl á vegum Samskipa, er ósátt við að mál hafi ekki verið höfðað gegn bílstjóra flutningabílsins þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að bílnum hafi verið illa við haldið.

Breska dagblaðið Western Gazette greinir frá því í dag að þrátt fyrir þessi sönnunargögn hafi saksóknarar á Íslandi fallið frá málssókn vegna þess að ekki þótti nægilega öruggt að sönnunargögnin dyggðu til sakfellingar í málinu. Fjölskylda hjónanna áfrýjaði þeim úrskurði á sínum tíma en þó ekki fyrr en frestur til þess hafði runnið út. Bróðir mannsins sem lést gagnrýnir íslensk stjórnvöld í málinu vegna þess að gögn í málinu voru ekki þýdd á ensku fyrr en mörgum mánuðum eftir að rétturinn til áfrýjunnar hafði runnið út.

Í réttarrannsókninni kom fram að hjónin, þau Anthony og Julie Taylor, hafi verið í fríi á Íslandi þegar bíll sem þau voru farþegar í lenti í árekstri við flutningabílinn. Rannsókn leiddi í ljós að bíll þeirra hafi verið í fullkomnu lagi og á leyfilegum hraða. Flutningabíllinn er hins vegar sagður hafa verið í slæmu ásigkomulagi. Framdekk bílsins voru loftlaus sem og hjólbarðar tengivagnsins. Þetta er talið hafa leitt til þess að hemlunarbúnaður bílsins hafi ekki virkað sem skyldi. Ennfremur kom fram við rannsókn málsins að farmur bílsins var ekki nægilega vel festur.

Réttardómstjóra í Somerset sýslu á Englandi hefur því verið falið óska eftir frekari upplýsingum um málið frá íslenskum yfirvöldum og hefur réttarrannsókninni því verið frestað uns þær berast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×