Ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála 13. júní 2007 18:43
Tveggja vikna sumarþingi Alþingis lauk nú síðdegis með samþykkt frumvarpa um afnám tekjutengingar á atvinnutekjum aldraðra og um sameiningu ráðuneyta. Stjórnarandstaðan segir þingstörfin hafa leitt í ljós að landsmenn búa við ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála. Átakamálin milli stjórnarflokkanna bíði óleyst í röðum.Forystumenn stjórnarandstöðunnar fengu það upplýst við upphaf þingfundar í morgun að stjórnarflokkarnir hefði ekki samið sín á milli um hin umdeildu vatnalög. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sagði þetta sýna að landsmenn búi við ríkisstjórn hins ófullgerða stjórnarsáttmála. Hann tiltók sjö mál sem stjórnarflokkarnir væru ósammála um; það væru launahækkun seðlabankastjóra, vatnalögin, hvalveiðar, friðun Þjórsárvera, framtíð Íbúðalánasjóðs og Ríkisútvarpið ohf. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, kvaðst vorkenna forsætisráðherra og hvatti hann til að fara með utanríkisráðherra sem fyrst aftur á Þingvöll til að ganga frá málum. Samfylkingarþingmenn væru hver og einn með handsprengjur í vösum sem þeir hentu hiklaust á ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Lokaatkvæðagreiðslur sumarþingsins fóru svo fram nú síðdegis. Þar voru meðal annars samþykkt lög sem afnema tekjutengingu ellilífeyris við atvinnutekjur 70 ára og eldri og lög um sameiningu ráðuneyta og tilfærslu verkefna þeirra á milli. Einnig lög um að álverið í Straumsvík verði skattlagt samkvæmt almennum skattalögum en ekki sérlögum. Forsætisráðherra las að lokum upp forsetabréf um frestun þingfunda. Alþingismenn eru þar með farnir heim í þriggja og hálfsmánaðar langt sumarfrí. Þeir koma næst saman til þingfundar þann 1. október í haust.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sjá meira