Geiri á Goldfinger í Íslandi í dag 1. júní 2007 20:23
Ásgeir Davíðsson eigandi Goldfinger segir grein um nektardansstaðinn í tímaritinu Ísafold vera harmleik. Í greininni voru ávirðingar þess efnis að mansal væri stundað þar innan dyra. Ásgeir sagðist ekki viss um hvort hann myndi kæra blaðið en taldi það ólíklegt. Hann ræddi málið við Sölva Tryggvason í Íslandi í dag. Í tímaritinu er birt mynd af Gunnari Birgissini, bæjarstjóra í Kópavogi inni á nektarstaðnum. Ásgeir sagðist hafa talað við Gunnar eftir að blaðið kom út. Ásgeir segir að á myndinni sé Gunnar ásamt hjónum. Það sé því rangt að myndin sýni Gunnar með tveimur dansstúlkum. Ásgeir sagði einnig að hann og Gunnar væru ágætis vinir en að það væri rangt að bæjarstjórinn væri fastakúnni. „Mér finnst þetta vera hálfgerður harmleikur," sagði Ásgeir. Hann segir að umfjöllun Ísafoldar sé runnin undan rifjum fyrrum starfsmanns sem hann hafi rekið. Hann sagði að sér vitanlega hefði vændi aldrei verið stundað á staðnum. Þó sagði hann mál af því tagi hafa komið upp en að þau hefðu verið leyst innanhúss. Hann sagði að ef kæmi á daginn að vændi hafi verið stundað inni á staðnum þá væri það að minnsta kosti ekki á hans vegum. Ásgeir viðurkenndi að hann hefði þá vinnureglu að starfsstúlkum hans væri bannað að fara ferða sinna í átta klukkutíma eftir að vakt þeirra lyki á staðnum. Hann sagði þetta gert til vegna þess að stúlkurnar væru drukknar að lokinni vakt og því þyrftu þær að sofa það úr sér. Að lokum sagði Ásgeir að ritstjóri Ísafoldar hefði viðurkennt fyrir sér að villur væri í greininni og sagðist hann hafa fengið tilboð frá ritstjóranum um að standa fyrir máli sínu í næsta tölublaði.
Mest lesið Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur sögð látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn Sjá meira