Funduðu um byggingu álvers Alcan í Þorlákshöfn 30. maí 2007 12:00
Fulltrúar Alcan í Straumsvík áttu fund með sveitarstjónarmönnum í Þorlákshöfn í gær til að kanna möguleikann á því að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver þar. Viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart álveri er allt annað en Hafnfirðinga - segir talsmaður Alcan. Þegar íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík í kosningu lá fyrir samningur Alcan og Landsvirkjun um orkusölu vegna stækkunarinnar. Hann var óundirritaður en byggður á viljayfirlýsingu um forgang Alcan að orku í stækkun álversins. Þessi viljayfirlýsing rennur úr gildi eftir sléttan mánuð eða í lok júní. Alcan leitar nú nýrra leiða til að stækka og nýta sér forgang að orkunni, á skömmum tíma. Í gær voru aðstæður skoðaðar í Þorlákshöfn á fundi með sveitarstjórnarmönnum. Siguður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan segir að meðal annars hafi verið athugað hvaða staðir kæmu til greina undir nýtt álver. Það væri ein leið sem Alcan væri að skoða til að geta stækkað eftir niðurstöðuna í íbúakosningunni. Þá er rætt um að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver. Sigurður segir það varla raunhæft að ætla að mál væru komin svo langt á næsta mánuði þannig að flötur væri á því að ganga til orkusölusamninga á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Aftur á móti væri möguleiki að reyna að fá Landsvirkjun til að framlengja viljayfirlýsinguna ef raunhæfir kostir um nýtingu orkunnar væru í sjónmáli. Sigurður segir að ákveðið hafi verið að halda áfram skoðun á Þorlákshafnarálveri í undirnefnd. Sveitarstjórnarmenn hefðu sýnt málinu mikinn áhuga og væri viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart Alcan allt annað og betra en hefði mætt þeim í Hafnarfriði undanfarið.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni Sjá meira