Hverfisráð Árbæjar ánægt með breytingar á leiðakerfi 29. maí 2007 17:25 MYND/Vilhelm
Meirihluti Hverfisráðs Árbæjar fagnar aukinni þjónustu Strætó bs. við íbúa í Árbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hverfisráðinu en fulltrúar minnihlutans í borginni hafa látið bóka mótmæli vegna breytinganna. Í bókunni furða borgarfulltrúarnir sig á því að ekki skuli hafa verið haft samráð við hverfisráðið. Í tilkynningu frá hverfisráðinu kemur fram að ný leið á milli Árbæjar, Grafarholts og Grafarvogs komi í gagnið, auk þess sem leið S5 verði í gangi allan daginn og um helgar. Áður gekk leið S5 aðeins á álagstímum virka daga. Þá segir einnig að forstöðumaður akstursdeildar Strætó bs. hafi komið á fund Hverfisráðsins í morgun og skýrt frá nýrri leiðaáætlun sem taka mun gildi frá og með næsta sunnudegi. „Í máli hans kom fram að einungis 357 farþegar að meðaltali nýta sér þjónustu leið S5 eins og hún er í dag. S-leiðirnar eru annars með frá 1600 uppí 3000 farþega á dag," segir í tilkynningunni. Sú breyting verður á ferðum S5 að hún mun fara Rofabæ í stað Bæjarháls. Leið S5 á að fara um Sæbraut en fór áður niður Miklubraut. Leið S6 mun taka við þeim farþegum S5 sem ætla að fara niður Miklubraut og Hringbraut. Fulltrúar hvefisráðsins segja að Strætó bs. staðhæfi að þessar leiðir munu mætast í Ártúni og hinkra eftir hvor annarri. „Verði mikil aukning farþega á leið S5 er Strætó bs. tilbúið til að breyta þjónustu við íbúa Árbæjarhverfis." segir ennfremur. Þá er tekið fram í tilkynningunni að meirihluta Hverfisráðsins hafi verið kynnt þessi niðurstaða af Strætó bs. fyrir nokkru síðan auk þess sem Ungmennaráði Árbæjar og Grafarholts voru einnig kynntar þessar nýju breytingar.
Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Erlent Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Innlent Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Innlent Halla mun funda með Xi Jinping Innlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Erlent Fleiri fréttir Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti „Það er ekkert ósætti eða rifrildi“ Sýkt vatnsból á Stöðvarfirði eigi brátt að heyra sögunni til Íbúum Bláskógabyggðar fjölgar og fjölgar Sjá meira