Sektaður fyrir vörslu barnakláms 29. maí 2007 14:04
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmannn til að greiða 250 þúsund krónur í sekt fyrir vörslu barnakláms. Efnið, alls 54 ljósmyndir og ein hreyfimynd, fannst í tölvu mannsins en lögregla gerði húsleit á heimili hans eftir að alþjóðalögreglan Interpol hafði tilkynnt henni um að maðurinn hefði sótt sér efnið. Fyrir dómi viðurkenndi maðurinn að hann skoðaði mikið klám á Netinu en sagðist ekki leita í barnaklám. Myndirnar sem um ræddi hefðu birst í svokölluðum uppskotssíðum (e. pop-up) sem hann hefði ekki valið. Út frá framburði sérfræðings í tölvumálum taldi dómurinn hins vegar sannað að maðurinn hefði farið inn á heimasíður með barnaklám af ásetningi. Maðurinn byggði einnig vörn sína á því að hann hefði eytt mörgum myndanna og hefði því ekki haft þær í sinni vörslu en sumar þeirra fundust á hörðum diski tölvunnar. Út frá dómafordæmi sakfelldi dómurinn manninn fyrir vörslu 42 ljósmynda og hreyfimyndarinnar en tók tillit til þess við ákvörðun refsingar að einungis fjórar til sex af myndinum hefðu talist grófar. Þá hefði maðurinn gert tilraun til þess að eyða myndunum. Var brot hans því ekki talið stórfellt í skilningi laganna og var hann því sektaður um kvartmilljón króna sem fyrr segir. Þá var tölva hans jafnframt gerð upptæk.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira