Mikið lemstraður eftir árás í miðbænum 28. maí 2007 18:00
Maður á sjötugsaldri er mikið lemstraður eftir hörkulega líkamsárás í miðborginni aðfararnótt sunnudags. Maðurinn er svo miður sín eftir árásina að hann er hættur við umsókn sína um íbúð fyrir aldraða í miðbænum. María Worms Hjartardóttir var vakinn með óþægilegu símtali klukkan fjögur aðfararnótt sunnudags. Lögreglan tilkynnti henni að faðir hennar, sem er 67 ára gamall, væri á bráðamóttöku Landsspítalans í Fossvogi eftir fólskulega líkamsárás við Laugaveginn. Hún hélt þegar á spítalann. María segir að sér hafi brugðið þegar hún sá föður sinn. Hann var með þrjá skurði á höfði, ofan og neðan við annað augað, nefbrotinn og rifbeinsbrotinn og með skrámur og marbletti víða um líkamann. Faðir Maríu er ekkill og býr í Grafarvogi. Hann ætlaði að gera sér glaðan dag og fór á veitingastað nálægt Hlemmi. Hann var á leið niður Laugaveginn til að verða sér út um leigubíl heim þegar atburðarrásin hófst. Ung stúlka bað hann um að gefa sér eld og bað hann að fylgja sér inn í húsasund. Þar réðst a.m.k. einn maður á manninn og lamdi hann í hnakkann og svo var gengið í skrokk á honum þar sem hann lá bjargarlaus í jörðinni. Árásarliðið rændi veski mannsins með sex þúsund krónum, debetkorti og krítarkorti ásamt bæði húsyklum hans, bíllyklum og gleraugum. Ekki er vitað hvort árásarliðið náði að taka út af kortum mannsins, en í gærkvöldi hafði maður samband vegna þess að dóttir hans hafði fundið eitthvað af kortunum og hann vildi koma þeim til skila.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira