Innlent

Auka þarf sýnilega löggæslu

Dóttir tæplega sjötugs manns sem ráðist var á við Laugaveg síðast liðið laugardagskvöld, telur þörf á aukinni sýnilegri löggæslu í miðborginni. Maðurinn er með þrjá skurði á höfði, er nefbrotinn og rifbeinsbrotinn.

Konan lýsir heldur óskemmtilegri reynslu þegar lögreglan hafði samband við hana um fjögur leytið aðfararnótt sunnudags og greindi henni frá því að faðir hennar, sem er 67 ára, hefði orðið fyrir fólskulegri líkamsárás í miðbænum í Reykjavík.

Konunni var mjög brugðið þegar hún sá föður sinn á Landsspítalnum í Fossvogi, þar sem hann var alblóðugur. Hún segir sögu sína á barnaland.is . Faðir hennar hafði farið út um ellefu leytið á laugardagskvöld og fengið sér bjór á veitingastað skammt frá Hlemmi. Eftir dvöl á veitingastaðnum hélt hann niður Laugaveg og hugðist verða sér út um leigubíl.

En á leið sinni niður Laugarveg gengur að honum ung stúlka og biður hann um að gefa sér eld. Stúlkan bað hann um að koma inn í húsasund þar sem hún ætlaði að reykja sígarettuna. Þegar þangað er komið er ráðist aftan að honum hann sleginn aftan frá með einhverju barefli. Hann dettur niður í malbikið og rankar við sér þegar þung fótspörk dynja á andliti hans og skrokknum.

Stúlkan og maðurinn taka veskið hans með 6000 kr. öllum kortum, debet og kredit, síma, hús og bíllykla tóbak, úrið og gleraugun hans. Konan segir að faðir hennar ekki hafa séð nógu vel því að mikið blóð rann úr vitum hans. Hann segir að einn árásarmannanna hafa sagt, "Farðu úr jakkanum helvítið þitt" og endurtekið þessa setningu nokkuð oft á meðan faðir konunnar lá enn í götunni og höggin dundu á honum.

Konan segir að faðir hennar sé með tvo skurði í andliti eftir spörk, annar fyrir ofan auga og annar fyrir neðan augað, einn skurð á hnakka eftir barefli, brotin rifbein, nefbrotinn auk sjónskaða sem eigi eftir að rannsaka betur. Hann sé aumur í vöðvum, með skrámur á hálsi og marbletti.

Konan vill að eitthvað róttækt sé gert, hún sé reið og sár. Það vanti augljóslega miklu meiri sýnilega löggæslu í miðbæinn og sér sé sagt að það sé einmitt það sem ríkislögreglustjórinn vilji gera en ekki fáist fé til þess. Hún spyr: Hversu margir þurfa að slasast? Eða jafnvel deyja?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×