Sætaskipan á ríkisstjórnarfundum ekki tilviljunum háð 25. maí 2007 23:51 MYND/GVA
Á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar í dag sátu þau Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlið við hlið. Þetta mun hafa vakið þó nokkra athygli enda ekki langt síðan þau tvö börðust hart um völdin í Reykjavíkurborg. Björn sagði einnig nýlega í viðtali við Viðskiptablaðið að hann hefði ekki verið sérstakur talsmaður þess að fara í samstarf við Ingibjörgu Sólrúnu. Þarna mun tilviljun ein þó ekki hafa ráðið, því Björn Bjarnason tekur það sérstaklega fram á heimasíðu sinni í kvöld að gamla hefðir ráði því hverjir sitji hvar á fundum ríkisstjórnar. Annar mikilvirkur bloggari, Guðmundur Magnússon, fer lengra með málið á sinni síðu. Hann segir að reglur um sætaskipan á ríkisstjórnarfundum hafi ekki verið birtar opinberlega, en að hann hafi fyrir því traustar heimildir að þær séu á þessa leið: „Á hægri hönd forsætisráðherra á ríkisstjórnarfundum situr utanríkisráðherra en fjármálaráðherra á vinstri, við hlið utanríkisráðherra situr sá ráðherra, sem hefur lengstan starfsaldur sem ráðherra, sá með næstlengstan við hlið fjármálaráðherra og síðan koll af kolli, þá þingseta og loks lífaldur." Guðmundur endar færslu sína á þann veg að samkvæmt þessu hafi það ekki verið val þeirra Björns og Ingibjargar að gerast sessunautar á fundinum, þau hafi bara verið að fara eftir reglum.
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Fleiri fréttir Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Sjá meira