Innlent

Kristrún aðstoðar Ingibjörgu

MYND/Lárus

Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra. Kristrún, sem er varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, er lögfræðingur að mennt og 35 ára gömul.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að Kristrún hafi meðal annars starfað hjá Lex lögmannsstofu, verið lögfræðingur Samtaka iðnaðarins, framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar, starfað hjá Umboðsmanni Alþingis og verið fréttamaður hjá RÚV. Þá hefur hún einnig sinnt kennslu við HR, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst.

Kristrún á einnig sæti í stjórnarskrárnefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×