Innlent

Þrettán sækjast eftir embætti umboðsmanns barna

Þrettán umsóknir bárust um embætti umboðsmanns barna en umsóknarfrestur rann út þriðjudaginn 22. maí. Í hópi umsækjenda eru níu konur og fjórir karlar.

Umsækjendur eru Árni Guðmundsson uppeldis- og menntunarfræðingur, Bergþóra Sigmundsdóttir lögfræðingur, Elín Vigdís Hallvarðsdóttir lögfræðingur, Eygló S. Halldórsdóttir lögfræðingur, Guðrún Ögmundsdóttir félagsfræðingur, Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lögum, Hrafn Franklín Friðbjörnsson sálfræðingur, Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, Margrét María Sigurðardóttir lögfræðingur, Ólína Þorvarðardóttir, doktor í íslenskum bókmenntum, Sigurður Ragnarsson sálfræðingur, Sverrir Óskarsson, félagsráðgjafi og stjórnsýslufræðingur, og Vigdís Erlendsdóttir sálfræðingur.

Reiknað er með að forsætisráðherra skipi í embættið frá 1. júlí næstkomandi og tekur eitthvert ofangreindra við af Ingibjörgu Rafnar sem gengt hefur embættinu frá upphafi árs 2005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×