Mögnuð dagskrá á Sýn um helgina 5. janúar 2007 21:15 Steven Gerrard og félagar í Liverpool mæta Arsenal í bikarnum um helgina NordicPhotos/GettyImages
Sjónvarpsstöðin Sýn verður með frábæra veislu fyrir íþróttaáhugamenn um helgina eins og venjulega. Hátíðin hefst í kvöld klukkan eitt með leik San Antonio og Dallas í NBA deildinni en hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir helstu viðburði helgarinnar. Föstudagur 5. janúar. Sýn kl 01:00. NBA körfuboltinn Bein útsending frá stórleik San Antonio Spurs og Dallas Mavericks í NBA deildinni. Þarna eru á ferðinni tvö af sterkustu liðum vesturdeildarinnar en Dallas er af mörgum talið heitasta lið NBA deildarinnar í dag. Dallas lék til úrslita í fyrra og San Antonio vann titilinn fyrir tveimur árum.Laugardagur 6. janúar. Sýn kl 12:20. Enska bikarkeppnin FA Cup. Bein útsending frá leik smáliðsins Tamworth og Norwich City í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu.Sýn kl 14:50. Enska bikarkeppnin FA Cup. Bein útsending frá leik Nottingham Forest og Charlton Athletic í ensku bikarkeppninni. Íslendingaliðinu Charlton hefur gengið illa í deildarkeppninni og þurfa því á góðum árangri í bikarkeppninni að halda. Hermann Hreiðarsson verður fjarri góðu gamni að þessu sinni vegna meiðsla en hins vegar hefur Rúrik Gíslasyni tekist að vinna sér sæti í leikmannahópnum að undanförnu.Sýn kl 14:50. Enska bikarkeppnin FA Cup. Bein útsending frá sannkölluðum stórviðburði í ensku bikarkeppninni þar sem Liverpool tekur á móti Arsenal á Anfield Road. Sjaldan eða aldrei hefur verið boðið upp á slíkan stórleik strax í 3. umferð en Liverpool eru handhafar bikarsins og Arsenal vann keppnina árið áður.Sýn kl 19:10. Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Real Sociedad og Osasuna í spænska boltanum. Sýn kl 21:00. Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Real Zaragoza og Sevilla í spænska boltanum. Hér mætast spútniklið vetrarins og um skylduáhorf að ræða fyrir aðdáendur spænska boltans því þessi lið hafa virkilega kryddað deildina í vetur. Sýn kl 02:00. Hnefaleikar. Bein útsending frá bardaga "Nígerísku Martraðarinnar" Samuels Peters og James Toney sem eru mættir aftur til þess að berjast um WBC titilinn í þungavigt. Peter var dæmdur sigur í bardaga þeirra í september en þeim var skipað að berjast aftur vegna mikilla deilna sem sköpuðust um úrskurðinn. Mikill aldursmundur er á köppunum en Toney er tólf árum eldri og hefur barist 77 sinnum. Peter hefur hins vegar barist 29 sinnum en hefur rotað andstæðinga sína tuttugu og tvisvar sinnum.Sunnudagur 7. janúar. Sýn kl 13.50. Enska bikarkeppnin FA Cup. Bein útsending frá viðureign úrvalsdeildarliðanna Manchester United og Aston Villa í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Báðum liðum hefur vegnað vel í vetur og því ætti þessi leikur að verða hinn besta skemmtun.Sýn kl 15:50. Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Getafe og meistaranna í Barcelona. Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið á skotskónum fyrir Katalóna í vetur og heldur því vonandi áfram á nýju ári.Sýn Extra kl 15.50. Enska bikarkeppnin FA Cup. Bein útsending frá leik Cardiff City og Tottenham Hotspur. Cardiff hefur oft komið á óvart í ensku bikarkeppninni og því um erfitt verkefni að ræða fyrir lærisveina Martins Jols. Leikurinn verður sýndur á Sýn um klukkan 00:20 eða laust eftir miðnætti. Sýn kl 17:50. Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Deportivo La Coruna og Real Madrid í spænska boltanum. Real byrjaði tímabilið skrykkjótt en virðast ætla að blanda sér fyrir alvöru í baráttuna um titilinn.Sýn kl 19:50. Spænski boltinn. Bein útsending frá leik Villareal og Valencia í spænska boltanum.Sýn kl 21.50. Bandaríska ruðningsdeildin NFL. Bein útsending frá leik austurstrandarliðanna Philadelphia Eagles og New York Giants í úrslitakeppni bandaríska NFL ruðningsins en nú fer að draga til tíðinda í þessari skemmtilegu deild. Liðin unnu sitt hvorn leikinn í deildarkeppninni í vetur en Philadelphia gekk í heildina betur og vann síðustu fimm leikina fyrir úrslitakeppnina.
Fótbolti Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Fleiri fréttir „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Jólagleði í Garðinum Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum „Ég elska peninga“ Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sjá meira