Bubbi leigir í Langagerði Breki Logason skrifar 9. nóvember 2007 16:12 Bubbi Morthens var að gefa út veiðibók. „
Ég leigi einbýlishús í Langagerði á meðan ég bíð þess að geta flutt inn," segir Bubbi Morthens sem er að byggja sér hús upp við Meðalfellsvatn. „Ég gæti sennilega flutt inn eftir áramót ef ég vildi en það er skemmtilegra að flytja inn í birtu og vori," segir Bubbi sem var nokkuð rámur og slappur þegar Vísir náði af honum tali enda með bullandi flensu. „Það er nú töluvert síðan húsið varð fokhelt og það er verið að vinna í innviðunum núna. Þetta er orðið mjög flott og ég er mjög ánægður með þetta. Ég er alltaf að læra nýja hluti í þessu. Meðal annars það að ein vika þegar maður er að byggja hús er ekki það sama og ein vika og hjá eðlilegu fólki," segir Bubbi sem hefur verið með iðnaðarmenn á sínum snærum í framkvæmdunum. „Það má segja að þeir eigi sína spretti," segir Bubbi í léttum tón. En þó að Bubbi sé með flensu þá hefur það ekki áhrif á nýja þáttinn hans sem er væntanlegur. „Nei við erum búnir að taka upp prufurnar og það er bara verið að vinna þáttinn sem fer í loftið eftir áramót." Bubbi situr þó ekki og bíður eftir vorinu því út er komin bók eftir kónginn sem er jólagjöf veiðimannsins og allra hinna sem hafa ekki hundsvit á laxveiði. „Hún heitir að kasta flugu í straumvatn er að tala við guð og er gefin út af JPV. Þetta eru smásögur sem allar bindast saman að því leitinu að þær fjalla um laxveiði." Bubbi segir sögurnar vera bæði af sjálfum sér og af öðrum. „Þetta eru sögur af fólki og löxum og eru allt frá því að vera fyndnar og yfir í það að vera há dramatískar."
Mest lesið Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Lífið Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Gagnrýni Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Sól sló í gegn á tískuviku í London Tíska og hönnun Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Bíó og sjónvarp Í kossaflensi á listasýningu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Fleiri fréttir Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Sjá meira