Vél sem lenti á Reykjavíkurflugvelli ekki í fangaflutningum 30. nóvember 2007 09:21 Úr myndasafni MYND/Stöð 2
Ekkert athugavert kom í ljós við leit lögreglu og tollayfirvalda í flugvél sem tengd hefur verið fangaflugi og hafði viðkomu á Reykjavíkurflugvelli í fyrrinótt. Ríkissjónvarpið greindi frá viðkomu vélarinnar í fréttum sínum í gær en hún var á leið frá Liverpool til Grænlands.Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að staðfest sé af hálfu tollayfirvalda og lögreglu að ekkert athugavert hafi komið fram í vélinni og voru allir farþegar í vélinni bandarískir ríkisborgarar og voru vegabréf þeirra skoðuð. Segir utanríkisráðuneytið því að hér hafi ekki verið um fangaflug að ræða.Þá segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að utanríkisráðherra hafi ákveðið í sumar að láta sérstakan starfshóp í ráðuneytinu skoða flug meintra fangaflugvéla um íslenskt svæði í kjölfar skýrslu þingmanns á þingi Evrópuráðsins. Í þeirri skýrslu er sérstökum tilmælum beint til nokkurra ríkja en Ísland er ekki í þeirra hópi.„Fram er komið og staðfestist í tilviki vélarinnar N5025, að íslensk stjórnvöld sýna sérstaka árvekni við leit í flugvélum sem bera tiltekin þekkt flugnúmer eða eru á annan hátt sambærilegar þeim vélum sem meint er að hafi verið notaðar til að flytja fanga með hætti sem stríðir gegn alþjóðlegum mannréttindalögum. Utanríkisráðuneytið mun áfram fylgjast með starfi alþjóðastofnana eða einstakra ríkja til að upplýsa meint ólögmætt fangaflug. Samráði sem þegar er hafið við dómsmálaráðuneyti og samgönguráðuneyti verður haldið áfram eftir því sem efni reynast til,„ segir að lokum í tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Sjá meira