Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys á NASA 31. október 2007 14:04 Motion Boys á tónleikum MYND/Myspace
Þrjár af vinsælustu hljómsveitum landsins blása til stórtónleika á NASA þann 16 nóvember næstkomandi. Í tilkynningu frá sveitunum segir að það séu breyttir tímar í íslenskri popptónlist. ,,Svo virðist sem lítt burðugt sveitaballapopp sé á undanhaldi og ferskari kynslóð sé tekin að úða olíu á nær útbrunninn kyndil íslenskrar popptónlistar." Þessu til sönnunar blási sveitirnar, Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys til tónleikanna. Sprengjuhöllina þarf vart að kynna þar sem hún hefur átt tvö af vinsælustu lögum ársins hingað til, „Verum í sambandi" og „Glúm,". En bæði lögin sátu svo vikum skipti í toppsæti Lagalistans. Fyrsta plata sveitarinnar, Tímarnir okkar, hefur svo fengið glimrandi viðtökur bæði hjá gagnrýnendum og plötukaupendum. Fréttablaðið kallaði plötuna m.a. „skemmtilegustu íslensku poppplötuna í áraraðir" og Morgunblaðið gaf plötunni fullt hús með tilheyrandi jáyrðum. Jeff Who? áttu eitt vinsælasta lag síðasta árs, hið stórskemmtilega og auðraulanlega „Barfly". Nýjasta lag sveitarinnar „She's Got the Touch" hefur heyrst oft upp á síðkastið og er vísbending um hvað önnur plata sveitarinnar kann að bera í skauti sér, en sú er væntanleg með vorinu. Að Airwaves hátíðinni undanskilinni hafa Jeff Who? ekki sést á tónleikum í nokkurn tíma og því verður spennandi að heyra hvað verður á efnisskránni. Í tilkynningunni segir að Motion Boys séu ,,stimamýksta hljómsveit landsins og þyki bera af í glæsileika." Hljómsveitin átti sumarsmellinn „Hold Me Closer to Your Heart" og nú er „Steal Your Love" tekið að tæta allt og trylla. Þeir slógu rækilega í gegn á Iceland Airwaves hátíðinni fyrir skemmstu, þar sem þeir fylltu gólfið og fengu alla viðstadda til að syngja og dansa með . Miðaverð á tónleikana er 1500 krónur og hefst miðasala 1. nóvember á miða.is og í verslunum Skífunnar og BT á landsbyggðinni.
Mest lesið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira