„Íbúðalánasjóður verður ekki einkavæddur á meðan ég er í ráðuneytinu“ 7. júní 2007 14:32 MYND/GVA
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra segir ekki koma til greina að einkavæða Íbúðalánasjóð. Þetta kom fram í umræðum utan dagskrár á Alþingi í dag sem Guðni Ágústsson hóf. Hann vildi vita hvað ríkisstjórnin væri að „véla" með sjóðinn. Guðni sagðist vilja vita hvað ríkisstjórnin væri að „véla" með sjóðinn og spurði ráðherrann hvort hafin væri sölumeðferð á sjóðnum. Jóhanna sagði mikilvægt standa vörð um sjóðinn, dregið hefði úr félagslegu hlutverki hans sem væri áhyggjuefni. Hún fullvissaði Guðna um að ekkert samkomulag væri fyrir hendi um breytingar á Íbúðalánasjóði. Umræðan hefur farið fram Árni Mathiessen, fjármálaráðherra sagði einkennilegt hve mikið heimur Guðna hefði breyst á þeim stutta tíma sem liðinn væri frá kosningunum. Hann benti þó á að umræða hefði farið fram um að færa forsvar sjóðsins til annars ráðuneytis og átti væntanlega við sitt eigið. Gamla góða Jóhanna Guðni sagði í lokin að umræðan staðfesti, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefði látið plata sig til þess að samþykkja sölu Íbúðalánasjóðs. Hann þakkaði félagsmálaráðherra fyrir skýr svör í málinu og hvatti „gömlu góðu Jóhönnu" til að gefa ekkert eftir og „halda fast í feldinn," eins og hann orðaði það. Stendur ekki til að einkavæða Jóhanna lauk svo umræðunni á þann veg að hún fullvissaði þingheim um að ekki standi til að einkavæða Íbúðalánasjóð. „Íbúðalánasjóður verður ekki einkavæddur á meðan ég sit í félagsmálaráðuneytinu," voru lokaroð ráðherrans.
Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira