Gillz í formannsstól Framsóknar SEV skrifar 13. desember 2007 12:22 Guðni hefur ekki áhyggjur af samkeppninni. MYND/Gunnar Andrésson
Bloggarinn Jón Guðmundsson liggur ekki á skoðunum sínum um menn og málefni. Í færslu í síðustu viku lýsir hann yfir aðdáun sinni á Gillzenegger, sem hann segir sjálfumglaðan ljósabekkjafíkil, sem minni sig á Jónas frá Hriflu. Hann segir að Jónas, líkt og Gillzenegger, hafi verið framsóknarmaður sem var aldrei feiminn við að láta í ljós skoðanir sínar. Jón segir að hann hafi lengi fylgst með bloggsíðu Gillz, enda reyni hann að fylgjast með pólitískri umræðu í netheimum. Hann telur Gillz hafa mikið til brunns að bera, og býst við stórum hlutum af honum. ,,Ég held að hann sé rétti maðurinn til að leiða Framsóknarflokkinn upp úr þeim djúpa dal sem hann er í núna, hvað fylgi varðar. Líkt og Jónas heitinn gerði forðum gæti Gillz leitt Framsóknarflokkinn, sem vel að merkja er eini flokkurinn á Íslandi sem hefur eitthvað vitrænt til málanna að leggja, til glæstra sigra á nýjan leik. " segir Jón á blogginu. ,,Ég tel að Framsóknarflokkurinn þurfi ekki á honum að halda." sagði Guðni Ágústsson formaður flokksins þegar Vísir bar tillöguna undir hann. ,,Það býr framsóknarmaður í mörgum hjörtum, ég er einfær um þetta.Jón hrífst af hæfni Gillzeneggers í fleiri málum. Hann segir að hann hafi með hárbeittri rökhugsun rýnt í aðstæður til að finna út úr því hvað plagaði femínista, og réttilega komist að því að þær vantaði kynlíf. ,,Ég man nú eftir niðursetningi á einum bænum þar sem ég var í sveit hér áður, sem aldrei hafði stundað kynlíf. Hún lét alltaf eins og yxna nykur, gekk um bölvandi og ragnandi heilu dagana og réðst á allt sem var karlkyns með skömmum og svívirðingum. Mér er því miður ekki kunnugt um hvort hún lagaðist einhvern tíman, en mig grunar að það sem hana vantaði hafi verið gott kynlíf. Það hefur a.m.k. alltaf veitt mér nokkra sálarró að stunda kynlíf, ef ég á að segja eins og er." segir Jón í niðurlagi færslunnar.
Mest lesið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Fleiri fréttir „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Sjá meira