Lífið

Ike Turner er látinn

Tónlistarmaðurinn Ike Turner er látinn 76 ára að aldri.

Ike varð þekktur á sjöunda áratugnum og þá meira fyrir stormasamt hjónaband sitt við Tinu Turner en tónlist sína. Eftir að þau giftust 1959 sömdu þau og fluttu mörg lög sem náðu á topp vinsældalistanna.

Tina ásakaði Ike um mikið ofbeldi í sinn garð þann tíma sem þau bjuggu saman. Ike bætti ráð sitt á seinni árum og hann vann til grammyverðlauna í ár fyrir bestu blúsplötuna.

Ekkert hefur verið gefið upp um dánarorsökina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.