Ríkisstjórnin stefnir á vit nýrra tíma á traustum grunni 31. maí 2007 21:22
Geir H. Haarde flutti í kvöld stefnuræðu sína á Alþingi. Hann fór yfir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar og greindi frá helstu áherslumálum næstu ára. Ríkisstjórnarflokkarnir hafi einsett sér að mynda frjálslynda umbótastjórn um kraftmikið efnahagslíf, öfluga velferðarþjónustu, bættan hag heimilanna og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins. „Með þessi meginmarkmið að leiðarljósi stefnir hin nýja ríkisstjórn á vit nýrra tíma á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið á undanförnum árum," sagði hann. Geir byrjaði á því að þakka öllum þingmönnum fyrir drengilega og málefnalega kosningabaráttu. Hann benti á að sjaldan hefðu jafnmargir nýjir þingmenn tekið til starfa sem hann sagði til marks um að Alþingi væri eftirsóknarverður vinnustaður. Þá fór forsætisráðherra yfir úrslit þingkosninganna. Hann sagði að úrslitin bæru það með sér að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefði verið öflugasti kosturinn í stöðunni um leið og hann þakkaði Framsóknarflokknum fyrir ánægjulegt samstarf. Í ræðu sinni sagði Geir að hin nýja ríkisstjórn byggi á samstarfi tveggja stærstu flokka landsins. „Þessir flokkar hafa einsett sér að mynda frjálslynda umbótastjórn um kraftmikið efnahagslíf, öfluga velferðarþjónustu, bættan hag heimilanna og aukna samkeppnishæfni atvinnulífsins. Með þessi meginmarkmið að leiðarljósi stefnir hin nýja ríkisstjórn á vit nýrra tíma á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið á undanförnum árum," sagði Geir. Hann sagði ennfremur að lögð yrði áhersla á að raunverulegt jafnrétti verði leiðarljós í allri stefnumótun ríkisstjórnarinnar „sem skapi öllum landsmönnum jöfn tækifæri. Árangur og hagsæld undanfarinna ára gefur tækifæri til enn frekari framfara og Ísland á að sjálfsögðu að vera áfram í fararbroddi þeirra þjóða sem búa við best lífskjör. Málefni yngstu og elstu kynslóðanna fá forgang og ríkisstjórnin mun leggja áherslu á að bæta kjör þeirra hópa sem standa höllustum fæti. Hún mun vinna að víðtækri sátt í samfélaginu um aðgerðir á sviði efnahags og félagsmála, um náttúruvernd og auðlindanýtingu og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna." Ræðu Geirs má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Eldur í Elliðarárdal Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Mikill reykur í Elliðarárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira