Varði vekur athygli 3. janúar 2007 17:00 Hallvarður Ásgeirsson. Varði hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist Lífsblómið. MYND/Rósa
Tónlistarmaðurinn Hallvarður Ásgeirsson, eða Varði eins og hann er kallaður, hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist Lífsblómið. Á plötunni blandar Varði saman sígildri tónlist og svokölluðu „doom metali“ eða myrkrametali. Varði gerði nýverið samning við breska plötufyrirtækið Paradigms Recordings sem hann komst í kynni við í gegnum heimasíðuna MySpace og hefur platan fengið góðar viðtökur.Heillandi og minimalísktPlatan var meðal annars valin ein af fimmtán bestu plötum ársins af veftímaritinu dustedmagazine.com. Þar segir að hún sé ekki eins mikið eftir bókinni og búast mætti við: „Lífsblómið er heillandi safn nútímalegrar, minimalískrar tónlistar. Sterkum áhrifum er blandað saman við framúrstefnulegar lagasmíðar á meðan einnig er leitað aftur til Vínarskólans.“ Engar heimildarmyndirVarði vakti á sínum tíma athygli fyrir heimildarmyndina Varði Goes Europe í leikstjórn Gríms Hákonarsonar þar sem hann ferðaðist sem götuspilari um Evrópu og spilaði á rafmagnsgítar sinn fyrir pening. Hann segist hafa ákveðið að taka sér frí frá öllu slíku um óákveðinn tíma. „Þetta var skemmtilegt verkefni en ég tók þetta ekki það alvarlega,“ segir hann og kímir. „Það var góð reynsla að spila á götunni og að vinna í öðrum geirum. Ég held að það sé eitthvað sem allir þurfa að prófa.“ Á leið til New YorkVarði, sem hefur spilað með Stórsveit Nix Noltes og stendur jafnframt á bak við plötufyrirtækið Andrými, útskrifaðist síðasta sumar úr Listaháskóla Íslands þar sem hann lagði stund á tónsmíðar. Hann segir að lögin á nýju plötunni hafi komið af sjálfu sér. „Ég kunni á rafmagnsgítar áður en ég fór í skólann. Ég fór í tónsmíðar í gegnum raftónlist. Þetta er svona blanda af þyngra rokki og ambíent pælingum,“ segir hann.Varði er um þessar mundir að kenna á gítar í Keflavík og stefnir að því að fara til New York í haust til að læra meira í kennslufræði. Útgáfutónleikar vegna plötunnar, sem fæst í 12 Tónum og Hljómalind, eru fyrirhugaðir síðar í þessum mánuði.
Mest lesið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Lífið Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Fleiri fréttir „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Sjá meira