Fólk syngur með í hjartanu 3. janúar 2007 09:30 Þóra Einarsdóttir sópransöngkona syngur á ný með Sinfóníuhljómsveit Íslands á fernum Vínartónleikum sem teljast mega með vinsælustu viðburðum í íslensku menningarlífi. MYND/GVA
Frumraun Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu með Sinfóníuhljómsveit Íslands var á Vínartónleikum þeirra fyrir tólf árum. Hún endurtekur nú leikinn og stígur á svið á fernum tónleikum því ekki má minna vera - svo vinsæll er þessi menningarviðburður. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa verið árlegur viðburður síðan árið 1981 og fara vinsældir þeirra stöðugt vaxandi. Eins og undanfarin ár verða haldnir fernir tónleikar í Háskólabíói, hinir fyrstu í dag á venjubundnum tíma kl. 19.30. Hinir síðari verða á sama tíma á morgun og á föstudagskvöld en þeir síðustu síðdegis á laugardag. Þóra segir að það sé skemmtileg tilviljun að hún stígi aftur á svið með Sinfóníunni á þessum tónleikum nú og áréttar að henni finnist ótrúlegt að tólf ár séu liðin frá fyrstu tónum hennar með sveitinni. Þóra stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og síðan við Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur sótt námskeið hjá ýmsum merkum söngvurum og tónlistarmönnum. Að námi loknu kom Þóra fram við Glyndebourne Festival Opera aðeins 23 ára gömul en frumraun hennar á sviði var í Rigoletto í Íslensku Óperunni fimm árum áður. Síðan þá hefur hún sungið víða um lönd við fræg óperuhús auk þess sem hún hefur komið mjög víða fram á tónleikum, bæði með hljómsveitum og með píanómeðleik. Óperuhlutverk Þóru eru orðin ótrúlega mörg eða á fjórða tug og spanna mjög vítt svið, allt frá Rameau til Birtwistle. Hún hefur þó lagt sérstaka áherslu á óperuhlutverk Mozarts og hefur nú sungið yfir hundrað sinnum í óperum hans. Þóra hefur að mestu starfað á meginlandinu og sungið mikið á Englandi en nú er hún búsett í Þýskalandi þar sem hún mun syngja hlutverk Kleópötru í óperu Händels um Júlíus Sesar og takast á við Carmina Burana. „Eitt hefur einfaldlega tekið við af öðru og maður trúir því eiginlega ekki hvað þetta er búinn að vera langur tími," segir Þóra en hún hefur ekki sungið hér heima síðan síðasta vor þegar hún tók þátt í flutningi Söngsveitarinnar Fílharmoníu á Sálumessu Mozarts. Það er líka sitthvað í bígerð þegar kemur að tónleikahaldi hér heima en Þóra vill lítið láta uppi um slíkt að svo stöddu. Efnisskráin á tónleikunum geymir kunnugleg stef og hljóma og segist Þóra búast við góðri stemningu. „Við flytjum verk Strauss, bæði föður og sonar, sem er við hæfi á Vínartónleikum. Þarna verða valsarnir sem fólk þekkir og þess vegna finnst gestum þetta svo gaman." Sem dæmi má þar nefna „An der schönen, blauen Donau", atriði úr Leðurblökunni og „Sögur úr Vínarskógi" en auk þeirra Strauss-feðga verða einnig leikin verk eftir Richard Heuberger og Carl Millöcker Einn meistara vínarsveiflunnar. Johann Stauss fékk tónlistina í arf eftir föður sinn og nafna en bræður hans, Josef og Eduard, eru einnig þekkt tónskáld. „Þetta er líka skemmtileg tilbreyting fyrir mig því ég hef aðallega verið að syngja Mozart og Händel en þetta er meiri dansmúsík. Ég held að fólkið syngi líka með í hjartanu," segir Þóra. Hljómsveitarstjórinn Christ-opher Warren-Green stýrir sveitinni að þessu sinni en hann hefur verið tónlistarstjóri Kammersveitar Lundúnaborgar síðan 1988 auk þess að stýra þekktum sveitum vestan hafs og hljóðrita fyrir virtustu útgáfufyrirtæki heims. Warren-Green hóf feril sinn sem fiðluleikari og segja forsvarsmenn sveitarinnar ekki ólíklegt að hann freistist til þess að handleika hljóðfærið við þetta tækifæri. Þetta er í fyrsta sinn sem Þóra vinnur með honum en hún segist vera einkar ánægð með samstarfið. „Það er sérstaklega gaman hvernig þetta blandast hjá honum því hann er sjálfur Englendingur sem eru þekktir fyrir smekkvísi og eru jafnan skemmtilega nákvæmir. Hins vegar er Vínarhefðin frjálsleg og mér líkar vel hvernig þetta mætist." Nánari upplýsingar um tónleika og efnisskrána má finna á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is.
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Lífið samstarf Ocasio-Cortez á lausu Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Fleiri fréttir Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira