Fækka á biðlistum með því að bjóða upp á skerta vistun 21. september 2007 14:22 MYND/Stefán
Ríflega 700 börn eru enn á biðlista eftir plássi á frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs. Stjórn ÍTR samþykkti á fundi sínum að bjóða foreldrum í þeim hverfum þar sem biðlistar eru að fækka vistunardögum þannig að hægt væri að taka inn börn af biðlistum. Fram kemur í tilkynningu frá ÍTR að um tilraunaverkefni sé að ræða og að reynsla næstu vikna verði síðan metin fyrir árið 2008 og hvort þessi breyting verði látin ganga yfir öll frístundaheimili ÍTR. Fram kemur í greinargerð frá ÍTR að skrifstofustjóri tómstundamála og sviðstjóri ÍTR hafi fundað með forstöðumönnum frístundamiðstöðva til að reyna að leysa vandanna. Lagt hafi verið til að foreldrar fengju að kaupa staka daga á frístundaheimilunum þannig að fleiri börn kæmust að. Var vísað til skoðanakönnunar á vegum ÍTR sem sýndi að þriðjungur foreldra myndu kjósa fjóra daga eða færri í viku fyrir börn sín. „Ef það hlutfall (35%) væri fært yfir á þau frístundaheimili þar sem biðlistar eru enn gætu um 300 börn komist af með skerta vistun þ.e. 4 daga eða færri á viku," segir í greinargerð ÍTR. Þessa tillögu ákvað meirihluti stjórnar ÍTR að nýta og ná breytingarnar til frístundaheimila í Grafarvogi, Breiðholti, Árbæ og Grafarholti auk nokkurra annara á höfuðborgarsvæðinu þar sem biðlistar eru. Engir biðlistar eru í Vesturbæ, miðborginni og Hlíðunum. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar kosti allt að 5 milljónir. Í greinargerð ÍTR kemur enn fremur fram að 1.933 börn séu komin með vistun á frístundaheimilum og er það svipað hlutfall og undanfarin tvö ár. Bent er á að eftirspurn hafi aukist gífurlega á þessu tímabili eða um rúmlega 400 börn.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Innlent Fleiri fréttir Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Rannsaka tilefnislausa líkamsárás í miðbænum Sjá meira