Ekkert miðað við Valencia 15. janúar 2007 16:45 Rafael Benitez segir pressuna á Spáni vera miklu meiri en á Englandi. MYND/Getty
Rafael Benitez segir að pressan sem hann sé undir sem knattspyrnustjóri Liverpool sé ekkert miðað við þá sem hann þurfti að þola þegar hann var við stjórnvölinn hjá Valencia á Spáni. Benitez hefur verið sagður valtur í sessi hjá Liverpool eftir tvö slæm töp gegn Arsenal fyrr í mánuðinum. Gengi Liverpool í deildinni hefur engu að síður verið mjög gott síðustu vikur og var sigurinn gegn Watford á laugardag sá sjöundi í síðustu átta leikjum í deildinni. Liðið er sem stendur í 3. sæti, sem gefur sæti í Meistaradeild Evrópu. “Ég held að ég sé frekar ungur af knattspyrnustjóra að vera en ég hef mikla reynslu af því að vera í erfiðri stöðu. Ég hef alltaf sagt að á eftir sunnudegi kemur mánudagur,” sagði Benitez léttur á því, aðspurður um pressuna í starfi sínu hjá Liverpool. “Þegar ég var hjá Valencia höfðum við eitt sinn spilað 13 leiki í röð án taps og framundan var útileikur gegn Espanyol. Og það var umtalað að ef við töpuðum þeim leik yrði ég í vandræðum. Við unnum deildina þetta tímabil með átta stiga mun,” segir Benitez. “Árið eftir þetta átti ég að verða rekinn vegna þess að ég hefði ekki náð að mynda nægilega sterkan leikmannahóp. Við komumst samt í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Svona var þetta á Spáni en ástandið er ekki svona ótrúlega ýkt hér á Englandi. Lykillinn að árangri er að hafa trú á leikmönnum og öðrum starfsmönnum félagsins,” sagði Benitez að lokum.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Tómas Bent seldur til Skotlands Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Sjá meira