Nordica verður hlekkur í Hilton keðjunni 29. maí 2007 21:22 MYND/Stefán
Icelandair Hotels, dótturfyrirtæki Icelandair Group og Hilton Hotels Corporation hafa gert með sér samning þess efnis að Nordica hótelið í Reykjavík verði hluti af Hilton hótelkeðjunni og heiti framvegis "Hilton Reykjavik Nordica". Á næstu vikum verður merkingum og ýmsu varðandi starfsemi hótelsins breytt í samræmi við staðla Hilton fyrirtækisins. Samningurinn felur í sér að rekstur hótelsins verður áfram á vegum Icelandair Hotels en Hilton leggur til „hina heimþekktu gæðaímynd keðjunnar og margvísleg markaðs- og kynningartækifæri á alþjóðavísu," eins og segir í tilkynningu frá Icelandair. Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, segir samninginn við Hilton staðfesta gæði Nordica hótelsins. "Hilton gerir strangar kröfur um gæði og aðstöðu á þeim hótelum sem bera nafnið og það hefur verið ánægjulegt að sjá að við þurfum ekki að gera neina stórvægilegar breytingar til þess að uppfylla þær. Þvert á móti hefur komið fram að hótelið er leiðandi ráðstefnuhótel á alþjóðavísu sem býr yfir frábæru starfsfólki. Með samningnum opnast okkur margskonar tækifæri sem byggja á þeirri staðreynd að Hilton er þekktasta og virtasta nafnið í heiminum í þessari atvinnugrein og býr yfir gríðarlega öflugu markaðs- og sölukerfi, sérstaklega í funda- og ráðstefnuhaldi og gagnvart viðskiptaferðamönnum." Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group, segir samninginn vera til marks um metnaðarfullan og kröftugan rekstur Icelandair Hotels og að það sé mikilvægt að fá jafn sterkt vörumerki og Hilton með sér í lið til að efla reksturinn enn frekar.Fyrsta Hilton hótelið mun hafa verið stofnað í Cisco í Texas í Bandaríkjunum af Conrad Hilton árið 1919, en þau eru nú um 500 talsins um allan heim. Auk þess rekur Hilton fyrirtækið aðrar hótelkeðjur, sem saman telja meira en 2.800 hótel.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira