Portúgalski sendiherrann á leið til landsins 29. maí 2007 19:25
Sendiherra Portúgals í Noregi hefur boðað komu sína til Íslands til að kanna aðstæður landa sinna á Kárahnjúkum. Fyrrverandi verkamenn þar líkja starfinu við þrælahald. Upplýsingafulltrúi Impregilo býður sendiherrann velkominn á Kárahnjúka.Portúgölsk stjórnvöld líta ásakanir verkamannanna alvarlegum augum. Helga Lára Guðmundsdóttir konsúll Portúgals hér á landi segir að nú sé verið að ganga frá ferðatilhögun sendiherra landsins í Noregi. Umfjöllun fjölmiðla síðustu daga sé þess eðlis að ganga verði úr skugga um að aðstæður þar séu í lagi. Með því sé þó ekki gengið út frá að hlutir á Kárahnjúkum séu í ólagi. Fyrrverandi starfsmenn við virkjunina hafa líkt vinnuaðstæðum þar við þrælahald, þeir séu látnir vinna í vatni sem nái þeim upp að hnjám í göngum þar sem skyggni sé örfáir metrar vegna mengunar. Þá sé maturinn í göngunum nánast óætur og Portúgalar séu látnir vinna lengur en aðrir starfsmenn og fái minna borgað. Ómar R. Valdimarsson upplýsingafulltrúi Impregilo segir að vel verði tekið á móti sendiherranum og honum sé frjálst að skoða það sem hann vill á staðnum. Nú starfa um sautján hundruð verkamenn á Kárahnjúkum og eru um þrjú hundruð þeirra portúgalskir ríkisborgarar.
Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira