Fóru í viðtal hjá Playgirl 10. janúar 2007 10:30 Hljómsveitin Ampop heldur ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mánaðamót.
Hljómsveitin Ampop er í viðtali í nýjasta tölublaði erótíska tímaritsins Play-girl. Þar er sveitin sögð ein af þeim sem eru líklegar til árangurs á árinu 2007 í grein sem ber yfirskriftina „Northern Exposure“. „Við þóttum tilvalið efni í þetta blað,“ segir Kjartan Friðrik Ólafsson, hljómborðsleikari Ampop, í léttum dúr. „Við kynntumst stelpu á Airwaves-hátíðinni og hún vildi endilega að við töluðum eitthvað við Playgirl. Við erum samt dannaðir þar eins og alls staðar annars staðar en ég man samt ekki eftir því að annar Íslendingur hafi birst í Playgirl. Þetta er nú bara umfjöllun um bandið og ekki verið að gera mikið úr kynþokka okkar, nema kannski Bigga söngvara. Þar er verið að leggja merkingu í gælunafn hans, Biggi,“ segir Kjartan og hlær. „Þetta er meira hugsað sem kynning og þarna er verið að fjalla um skandinavísk bönd.“Tónleikaferð um Bandaríkinplaygirl Ampop er í viðtali í nýjasta tölublaði Playgirl.Ampop mun halda ferna tónleika í Bandaríkjunum um næstu mánaðamót. Hinn 30. janúar spilar sveitin á Cinespace í Hollywood og kvöldið eftir verður hún á Silverlake Lounge í Los Angeles. Fimmta og sjötta febrúar spilar Ampop síðan á TBA og Pianos í New York. „Markmiðið með þessari ferð til Bandaríkjanna er að kynna þessar fínu plötur sem við eigum. Vonandi finnum við einhvern farveg fyrir okkur þarna,“ segir Kjartan. Vonandi skemmtilegraAmpop spilaði síðast í Bandaríkjunum árið 2005 þegar hún tróð upp á South by Southwest-hátíðinni í Texas. Eftir það hélt sveitin tónleika í Kanada en kom við í millitíðinni í New York til að spila á Pianos. „Við fengum þokkalega fínar viðtökur en giggið á Pianos var reyndar ekkert sérstakt,“ segir Kjartan um síðustu ferð. „Ég vona að það verði skemmtilegra í þetta skiptið.“ Biðstaða í BretlandiHvað varðar Bretlandsmarkað segir Kjartan að hlutirnir séu í biðstöðu þar en stefnan sé tekin á að fara þangað út til að kynna nýjustu plötu Ampop, Sail to the Moon, sem kom út fyrir síðustu jól og fékk góðar viðtökur. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira