Justin sagður í tygjum við Scarlett 9. janúar 2007 12:30 Cameron Diaz og Justin Timberlake hafa að sögn slitið samvistir eftir þriggja ára samband.
Breska blaðið News of the World greindi frá því á sunnudaginn að Scarlett Johansson væri að öllum líkindum hjónadjöfullinn í sambandi Justins Timberlake og Cameron Diaz. Samkvæmt blaðinu hófst samband Timberlake og Scarlett þegar þau unnu saman að gerð tónlistarmyndbands við nýjustu smáskífu söngvarans, What Goes Around. Hið merkilega er að myndbandið byggist á sambandi Justins við Britney Spears enda er líkamsvöxtur þeirra Spears og Johansson sagður keimlíkur. Heimildarmönnum News of the World ber saman um að vel hafi farið á með þeim á tökustað en eru jafnframt sammála um að Justin reyni allt hvað hann geti til að halda þessu leyndu. Timberlake er á leiðinni í tónleikaferð um heiminn og var það sagt ástæðan fyrir sambandsslitunum. Justin og Cameron eru sögð hafa slitið samvistir í síðustu viku. Timberlake hló reyndar að blaðamönnum sem spurðu hann að þessu þegar poppstjarnan mætti á frumsýningu kvikmyndarinnar Alpha Dog en Timberlake reynir þar fyrir sér á hvíta tjaldinu. „Hlutirnir gengu einfaldlega ekki upp hjá Justin og Cameron," segir einn heimildamaður blaðsins. „Hann var á leiðinni í tónleikaferðalag og vildi einbeita sér að því af fullum krafti," bætir hann við. „Hins vegar virtist það ekki koma að sök þegar hann gerði sér dælt við Scarlett." Scarlett Johansson var í tygjum við Josh Hartnett þar til í lok síðasta árs. Hún er nú sögð hafa rænt Timberlake frá Cameron Diaz. News of the World greinir jafn-framt frá því að þeim Justin og Scarlett hafi komið einstaklega vel saman í frumsýningarteiti Alpha Dog og gestir og gangandi hafi vel getað greint að þar bjó eitthvað meira að baki en einskær vinátta. „Þau vildu halda þessu leyndu en Justin gat varla haft augun af Scarlett," segir einn viðstaddra. Justin og Britney voru sögð fyrirmyndarpar þar til Britney hélt framhjá honum með danshöfundi. Ef af sambandi Scarlett og Justin verður gætu hlutirnir í kvikmyndaborginni Hollywood orðið nokkuð flóknir. Scarlett var áður með Jared Leto sem síðan var lengi með Cameron Diaz en hún hætti með honum til að byrja með Justin Timberlake. Scarlett hefur áður komist á forsíður blaðanna fyrir skrautlegt einkalíf en leikkonan lýsti því yfir að hún gæti ekki verið nokkrum manni trú, slíkt stangaðist á við lífsspeki hennar.
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira