Álversáhugi í Ölfusi 30. maí 2007 18:54
Bæjaryfirvöld Þorlákshafnar eru mjög jákvæð gagnvart því að fá til sín nýtt álver Alcan. Fulltrúar Alcan voru í Þorlákshöfn í gær og ræddu möguleika þess að reisa 280 þúsund tonna álver á staðnum. Forgangur Alcan að orku hjá Landsvirkjun, sem tryggð var vegna stækkunarhugmynda í Straumsvík, rennur úr gildi eftir mánuð. Eftir að íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík hefur eigandinn, Alcan, skoðað nýjar leiðir til að auka umsvif sín hér á landi. Í gær var fundað með sveitarstjórnarmönnum í sveitarfélaginu Ölfusi og skoðuð möguleg lóð undir nýtt álver steinsnar frá Þorlákshöfn. Þar eru menn afar áhugasamir um þessa framkvæmd. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri í Ölfusi segir að menn séu jákvæðir gagnvart þessari framkvæmd. Hann bendir á að Ölfus sé stórt sveitarfélag og gott rými til að setja niður álver. Sveitarfélagið hefur þegar bent á lóð sem er um tvo kílómetra frá höfninni. Þarf nú að kanna hvort heppilegt er að flytja súrál þessa leið. Alcan var búið að tryggja sér orku frá Landsvirkjun til stækkunar í Straumsvík og lágu samningar fyrir óundirritaðir, á gundvelli viljayfirlýsingar. Sú viljayfirlýsing rennur úr gildi, að óbreyttu, eftir mánuð. Sigurður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan sagði við Stöð 2 í dag að til greina kæmi að fá forganginn framlengdan í samningum við Landsvirkjun ef viðræður við Ölfus væru komnar á góðan rekspöl. Ólafur Áki benti á að frumviðræður þyrftu ekki að taka nema fáar vikur. Forsenda þess að álver rísi við Þorlákshöfn er að hafnaraðstaðan þar verði stórbætt. Þetta kallar á talsverðar framkvæmdir sem kosta 5 til 6 milljarða. En Ólafur Áki bendir á að slík stórskipahöfn myndi fela í sér mikla möguleika gagnavrt skipaflutningum.
Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sjá meira