Íslenski fáninn á barnafötum á Spáni Jón Örn Guðbjartsson skrifar 4. júní 2007 19:14
Verslanakeðjan, C&A hefur í sumar selt barnaflíkur á Spáni með eftirlíkingu af íslenska fánanum. Samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að bjóða útlendar vörur með myndum af þjóðfánanum. Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, segir að lögreglunni beri að taka málið til meðferðar. Í einni sumarlínu C&A hefur verið lögð áhersla á að nota eftirlíkingar af íslenska fánanum en um þessar mundir eru norrænir þjóðfánar í tísku á peysum og kuldaflíkum. Eftirlíkingar af fána Norðmanna hafa verið vinsælar á útivistarflíkum til að skapa trausta ímynd auk þess sem fáninn vísar til sögufrægra norskra heimsskautafara. Ítalskt-bandaríska fyrirtækið Napapijri notar norska fánann í merki sínu og á ýmsum vörum. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Napapijri veitt leyfi af norskum ráðamönnum til að nota norska fánann með þessum hætti. Það fékkst þó ekki staðfest hjá fyrirtækinu í dag. Enginn á Íslandi gæti hins vegar veitt C&A leyfi til að nota íslenska fánann með sama hætti því það varðar við lög. Að sögn Þórhalls Vilhjálmssonar, lögfræðings hjá forsætisráðuneytinu, er fátt annað til ráða en að kæra þetta tilvik og taka til meðferðar hjá lögreglu. Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins tekur í svipaðan streng og segir lögin mjög skýr í þessu efni. Jón H.B. Snorrason, aðstoðar lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins telur að málið sé hins vegar utan lögsögu íslensku lögreglunnar. Ef það varði við lög komi það til kasta lögreglunnar á Spáni. Aðstoðarlögreglustjóri telur hins vegar torsótt að sanna að íslenski fáninn sé hér á ferðinni.
Mest lesið Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Fleiri fréttir Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Sjá meira