Samherji boðar samdrátt vegna erfiðrar stöðu í sjávarútvegi 4. júní 2007 18:34 MYND/GVA
Fyrirhuguðum framkvæmdum útgerðarfyrirtækisins Samherja hf. við uppbyggingu landvinnslunnar á Dalvík verður frestað um eitt ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja. Hann segir erfiðleikar í íslenskum sjávarútvegi vegna óhagstæðrar gengisþróunar, hárra vaxta og niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar um ástand þorskstofnsins gera það að verkum að fresta verði framkvæmdunum. Í yfirlýsingunni kemur fram að í febrúar síðastliðnum hafi Samherji sett sér það markmkið að byggja upp landvinnslu félagsins á Dalvík og gera hana þá fullkomnustu í heimi. Mikil vinna hafi verið lögð í undirbúning verkefnisins á síðustu mánuðum og allar áætlanir liggi núi fyrir. Í millitíðinni hafi allar ytri aðstæður landvinnslu á Íslandi hins vegar snúist mjög til verri vegar. Hráefnisverð hafi hækkað um 30 prósent frá áramótum og gengi krónunnar styrkst um 10 prósent á sama tíma. Þessar breytingar ásamt öðrum kostnaðarhækkunum innanlands hafi það í för með sér að framlegð vinnslunnar hafi minnkað verulega. Þá segir ennfremur í yfirlýsingunni að veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar um minnkaðar aflaheimildir í þorski séu mikið áfall og vart til þess fallinn að auka bjartsýni hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Vill stórminnka RÚV og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn Sjá meira